Hoppa yfir valmynd
25. október 2012 Dómsmálaráðuneytið, Innviðaráðuneytið

Ráðstefna um lýðræði á 21. öld haldin 10. nóvember

Ráðstefna um eflingu lýðræðis á Íslandi undiryfirskriftinni Lýðræði á 21. öld verður haldin í Ráðhúsi Reykjavíkur laugardaginn 10. nóvember klukkan 10 til 15. Að ráðstefnunni standa innanríkisráðuneytið í samvinnu við Lýðræðisfélagið Öldu, Reykjavíkurborg og umboðsmann barna.

Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra setur ráðstefnuna með ávarpi sem hann nefnir: Lýðræði á nýrri öld – valdið til fólksins. Innlendir og erlendir sérfræðingar flytja erindi um hinar ýmsu hliðar á íbúalýðræði, kosningaaldur, þátttöku barna og fleira. Þrír erlendir sérfræðingar flytja fyrirlestra; þær Melissa Mark-Viverito, borgarfulltrúi í  New York, og Donata Secondo, verkefnisstjóri The Participatory Budgeting Project og ræða þær um fjárhagsáætlunargerð með þátttöku íbúa í New York og Martin Østerdal, framkvæmdarstjóri LNU, Landsrådet for norske barne- og ungdomsorganisasjoner, en hann fjallar um þátttöku barna og kosningar – kosningaaldur og leiðir ungmenna til þátttöku í lýðræðislegu samfélagi. Jón Gnarr borgarstjóri og Ellý Katrín Guðmundsdóttir borgarritari fjalla um íbúalýðræði og beint lýðræði.  

Margrét María Sigurðardóttir, umboðsmaður barna, ræðir efnið börn mega gagnrýna skólann og tvö ungmenni frá ráðgjafarhópi umboðsmanns barna, Unnur Helgadóttir og Ásta Margrét Helgadóttir, flytja erindi sem þær nefna: Maður þarf ekki að vera orðinn 18 til að hafa skoðun!

Ráðstefnan verður öllum opin, gjaldfrjáls og öllum aðgengileg, rittúlkuð og táknmálstúlkuð. Ráðstefnustjórar verða Ragnhildur Hjaltadóttir og Kristinn Már Ársælsson.

Dagskrá ráðstefnunnar fer hér á eftir:

Lýðræði á 21. öld

Ráðstefna um eflingu lýðræðis á Íslandi í Ráðhúsi Reykjavíkur
laugardaginn 10. nóvember 2012 klukkan 10 til 15
 

Dagskrá

09.30 til 10:00:
Stúlknakórinn Graduale Nobili syngur nokkur lög 

10.00 til 12.00:
Ráðstefnustjórar: Ragnhildur Hjaltadóttir, ráðuneytisstjóri innanríkisráðuneytis og Kristinn Már Ársælsson, stjórnarmaður í Öldu:
Ráðstefna og dagskrá kynnt

Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra: Lýðræði á nýrri öld: Valdið til fólksins

Melissa Mark-Viverito, borgarfulltrúi í  New York, og Donata Secondo, verkefnisstjóri The Participatory Budgeting Project: Fjárhagsáætlunargerð með þátttöku íbúa í New York

12:00 til 12.30 Matarhlé

12.30 til 13.15:
Ellý Katrín Guðmundsdóttir, borgarritari: Íbúalýðræði í Reykjavík
Jón Gnarr, borgarstjóri: Betri Reykjavík og beint lýðræði

13.15 til 14.50:
Margrét María Sigurðardóttir, umboðsmaður barna: Börn mega gagnrýna skólann!

Unnur Helgadóttir og Ásta Margrét Helgadóttir, ungmenni frá Ráðgjafarhópi umboðsmanns barna: Maður þarf ekki að vera orðinn 18 til að hafa skoðun!

Martin Østerdal, framkvæmdarstjóri LNU, Landsrådet for norske barne- og ungdomsorganisasjoner: Þátttaka barna og kosningar – kosningaaldur og leiðir ungmenna til þátttöku í lýðræðislegu samfélagi  

14.50 til 15.00

Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra: Lokaorð

  • Ráðstefnan er öllum opin, ókeypis og aðgengileg.
  • Rit og táknmalstúlkun og túlkun erlendra fyrirlesara. Bein útsending á netinu.
  • Nánari upplýsingar á vefsíðum Innanríkisráðuneytisins: irr.is, umboðsmanns barna: barn.is, Reykjavíkurborgar: reykjavik.is og Öldu: alda.is.

 

 

 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum