Hoppa yfir valmynd
8. október 2012 Dómsmálaráðuneytið

Fjórum af sex fræðsluþingum lokið um forvarnir vegna kynferðisbrota gegn börnum

Lokið er fjórum fræðsluþingum af sex  um hlutverk grunnskóla í forvörnum og viðbrögðum við kynferðislegu ofbeldi gagnvart börnum. Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra ávarpaði þingið sem haldið var á Hvolsvelli í dag en á morgun verður þing á Ísafirði og á miðvikudag í Reykjavík og lýkur þá fundaröðinni sem er hluti af átaki um vitundarvakningu um kynferðisofbeldi gegnum börnum.

Ögmundur Jónasson flutti ávarp á fræðsluþingi um kynferðisbrot gegn börnum.
Ögmundur Jónasson flutti ávarp á fræðsluþingi um kynferðisbrot gegn börnum.

Ögmundur Jónasson sagði vitundarvakninguna til marks um að kynferðislegt ofbeldi yrði að taka alvarlega og kvað brýnt að slíkt gerðist ekki aðeins með einu átaki eða verkum einnar manneskju, það yrði að gerast með þátttöku alls samfélagsins. Ráðherra sagði einnig brýnt að samfélagið væri tilbúið til að horfast í augu við kynferðislegt ofbeldi og að menn mættu ekki falla í gryfju afneitunar. Við yrðum að mynda keðju sem virkaði þegar börn á Íslandi kölluðu eftir hjálp.

Þingin eru liður í vitundarvakningarátaki íslenskra stjórnvalda í samræmi við sáttmála Evrópuráðsins um varnir gegn kynferðislegri misnotkun og kynferðislegri misneytingu gegn börnum. Á fyrri hluta hvers fræðsluþings hefur verið fjallað um sáttmála Evrópuráðsins og um fræðslu fyrir börn um kynferðislegt ofbeldi en í seinni hlutanum rætt um nauðganir og kynferðislegt ofbeldi milli unglinga. Sex fyrirlesarar flytja erindi og stýra einnig hópumræðum um efnið á hverjum fundi.

Nánari upplýsingar má sjá á slóðinni: www.vel.is/vitundarvakning. Fulltrúar allra grunnskóla landsins eru sérstaklega boðaðir til landshlutaþinganna sem auk þess eru  opin öðrum sem vinna að velferð og bættum hagsmum barna.

Fundur um kynferðisbrot gegn börnum.

 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum