Hoppa yfir valmynd
26. júní 2020 Matvælaráðuneytið

Niðurstöður um úthlutun á WTO tollkvóta á landbúnaðarafurðum fyrir tímabilið 1. júlí 2020 til 30. júní 2021

Þriðjudaginn 23. júní 2020 rann út umsóknarfrestur um tollkvóta vegna innflutnings á nauta-, svína-, kinda-, geita- og alifuglakjöti, unnum kjötvörum, smjöri og ostum og eggjum fyrir tímabilið 1. júlí 2020 til 30. júní 2021.

 

Samtals bárust þrettán umsóknir frá aðilum um tollkvótann. Til útboðs kom á tollkvótum á nauta-, svína- og  alifuglakjöti, unnum kjötvörum og ostum þar sem umsótt magn var meira en það magn sem í boði var.

 

Samtals bárust þrettán gild tilboð í tollkvótann.

 

Sex tilboð bárust um innflutning á nautgripakjöti, samtals 216.000 kg á meðalverðinu 117 kr./kg.  Hæsta boð var 350 kr./kg en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá fimm fyrirtækjum um innflutning á 95.000 kg. á jafnvægisverðinu 100 kr./kg.

 

Tvær umsóknir bárust um innflutning á svínakjöti, samtals 20.000 kg. Ekki kom til útboðs þar sem umsóknir náðu ekki því magni sem í boði var eða 64.000 kg.

 

Tvær umsóknir bárst um innflutning á kinda- eða geitakjöti, samtals 60.000 kg. Ekki kom til útboðs þar sem umsóknir náðu ekki því magni sem í boði var eða 345.000 kg.

 

Sex tilboð bárust um innflutning á kjöti af alifuglum, samtals 173.000 kg á meðalverðinu 6 kr./kg.  Hæsta boð var 100 kr./kg en lægsta boð var 1 kr./kg. Tilboðum var tekið frá þremur fyrirtækjum um innflutning á 59.000 kg á jafnvægisverðinu 10 kr./kg.

 

Þrjár umsóknir bárust um innflutning smjöri, samtals 22.000 kg. Ekki kom til útboðs þar sem umsóknir náðu ekki því magni sem í boði var eða 53.000 kg.

 

Átta tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á ostum, samtals 169.500 kg á meðalverðinu 350 kr./kg.  Hæsta boð var 650 kr./kg en lægsta boð var 1 kr./kg. Tilboðum var tekið frá sex fyrirtækjum um innflutning á 119.000 kg á jafnvægisverðinu 181 kr./kg.

 

Fjórar umsóknir bárust í tollkvóta vegna innflutnings á eggjum og afurðum þeirra, samtals 60.000 kg. Ekki kom til útboðs þar sem umsóknir náðu ekki því magni sem í boði var eða 76.000 kg.

 

Tíu tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á unnum kjötvörum, samtals 151.000 kg. á meðalverðinu 215 kr./kg. Hæsta boð var 600 kr./kg en lægsta boð var 0 kr./kg.  Tilboðum var tekið frá níu fyrirtækjum um innflutning á 86.000 kg á jafnvægisverðinu 5 kr./kg.

 

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur úthlutað tollkvótum til eftirtalinna fyrirtækja á grundvelli tilboða og/eða umsókna þeirra:

 

Nautgripakjöt fyrir tímabilið júlí 2020 - júní 2021

Magn (kg)

Tilboðsgjafi

40.000

Ekran ehf

4.000

Garri ehf

25.000

Innnes ehf

15.000

Kjötmarkaðurinn ehf

11.000

Sælkeradreifing ehf

 

Svínakjöt fyrir tímabilið júlí 2020 - júní 2021

Magn (kg)

Tilboðsgjafi

10.000

Ekran ehf.

10.000

Nautica ehf

 

Kinda- og geitakjöt fyrir tímabilið júlí 2020 - júní 2021

Magn (kg)

Tilboðsgjafi

50.000

Ekran ehf

10.000

Kríonan ehf

 

Alifuglakjöt fyrir tímabilið júlí 2020 - júní 2021

Magn (kg)

Tilboðsgjafi

46.217

Aðföng

10.000

Krónan ehf

2.783

Nautica ehf

 

Smjör fyrir tímabilið júlí 2020 - júní 2021

Magn (kg)

Tilboðsgjafi

10.000

Ekran ehf.

2.000

Danól ehf

10.000

Krónan ehf

 

Ostur fyrir tímabilið júlí 2020 - júní 2021

Magn (kg)

Tilboðsgjafi

20.000

Aðföng

55.000

Innnes ehf

17.000

Krónan ehf

10.000

Mjólkursamsalan ehf

15.000

Nathan & Olsen ehf

2.000

Nautica ehf

 

Fuglsegg fyrir tímabilið júlí 2020 - júní 2021

Magn (kg)

Tilboðsgjafi

20.000

Ekran ehf

15.000

Innnes ehf

5.000

Krónan ehf

20.000

Samkaup hf

 

Unnar kjötvörur fyrir tímabilið júlí 2020 - júní 2021

Magn (kg)

Tilboðsgjafi

22.000

Aðföng

4.133

Danól ehf

1.333

Ekran ehf

25.000

Innnes ehf

267

KFC ehf

15.000

Krónan ehf

3.000

Nautica ehf

267

Pizza hut ehf

15.000

Sælkeradreifing ehf

 

Reykjavík, 26. júní 2020

 

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum