Hleypt var af stokkunum 11. maí 2011 alheimsátakinu áratugur aðgerða til fækkunar á umferðarslysum sem standa á frá 2011 til 2020. Á Íslandi fór atburðurinn fram hjá miðstöð ökukennslu á Kirkjusandi í Reykjavík að viðstöddum forseta Íslands, velferðarráðherra og innanríkisráðherra auk fulltrúa ýmissa aðila sem standa að átakinu.
Ráðherra hefur falið sýslumanninum á Siglufirði
að annast þau verkefni sem sýslumanni eru falin samkvæmt lögum um
sanngirnisbætur fyrir misgjörðir á stofnunum eða heimilum sem falla
undir lög nr. 26/2007.