Almennt

Barnalög

Um faðerni barna, forsjá, umgengni og meðlag er fjallað í barnalögum, nr. 76/2003, með síðari breytingum. Hér er að finna upplýsingar um helstu reglur og sjónarmið sem eiga við á þessu sviði og er þeim ætlað að gefa foreldrum yfirlit yfir málaflokkinn en ekki er um tæmandi upplýsingar að ræða.

Hér eru einnig tenglar í ýmis eyðublöð á vef sýslumanna til að nota í málum á sviði barnaréttar auk þess sem hægt að nálgast barnalögin og greinargerð með frumvarpi til barnalaga.
Hér að neðan eru tenglar á síður sem fjalla nánar um nokkra kafla barnalaga

  • Móðerni og faðerni - Fjallað er um móðerni og faðerni barns í I. kafla barnalaga og um dómsmál til feðrunar barns í II. kafla.
  • Forsjá barns - Um foreldraskyldur og forsjá barns er nánar fjallað í V. kafla barnalaga, um dómsmál vegna ágreinings um forsjá barns í VI. kafla og um framkvæmd forsjárákvörðunar í VII. kafla barnalaga.
  • Umgengni - Fjallað er um umgengnisrétt í VIII. kafla barnalaga.
  • Meðlag - Fjallað er um framfærslu barna í IX. kafla barnalaga.




Tungumál


Flýtival



Þetta vefsvæði byggir á Eplica