Gjaldskrá um greiðslur fyrir aukaverk presta þjóðkirkjunnar, nr. 668/2003.
1. gr.
Prestum ber greiðsla fyrir aukaverk frá þeim sem verk er unnið fyrir samkvæmt gjaldskrá þessari.
Greiðslur fyrir aukaverk skal miða við ákveðinn fjölda eininga. Hver eining jafngildir 1/10 hluta gjalds fyrir borgaralega hjónavígslu á hverjum tíma, samkvæmt gildandi lögum um aukatekjur ríkissjóðs. Þó er dóms- og kirkjumálaráðherra heimilt að ákveða aðrar fjárhæðir á grundvelli endurskoðunar, sem og ef forsendur breytast verulega af einhverjum ástæðum á gildistímanum eða ef einhver aukaverk verða felld út úr gjaldskránni.
2. gr.
Greiðslur fyrir eftirtalin aukaverk eru sem hér segir:
1. Skírn 3.500 kr.
Ef skírt er við guðsþjónustu er skírnin ókeypis
2. Ferming 9.300 kr.
3. Hjónavígsla 6.500 kr.
4. Greftrun með ræðu 13.900 kr.
5. Kistulagning 4.000 kr.
6. Greftrun án ræðu 5.000 kr.
7. Fyrir embættisvottorð 650 kr.
3. gr.
Ef prestur er sérstaklega kvaddur til að vinna aukaverk, greiðir sá ferðakostnað prestsins er beiðist verksins, samkvæmt reglum um greiðslu ferðakostnaðar ríkisstarfsmanna, þó eigi fyrir lengri vegalengd en 10 km. Við kistulagningu og greftrun reiknist þessi vegalengd tvöföld.
4. gr.
Prestur lætur ókeypis í té vottorð vegna meðlagsgreiðslna barna og vottorð gefin samkvæmt beiðni sveitarstjórna, opinberra stofnana og annarra stjórnvalda.
Presti er ennfremur skylt að gefa hlutaðeigandi ókeypis vottorð um skírn og hjónavígslu, enda sé þeirra vitjað eigi síðar en viku eftir að athöfn fór fram.
5. gr.
Gjaldskrá þessi er sett samkvæmt lögum nr. 36/1931 um embættiskostnað og aukaverk presta. Gildir hún frá 1. október 2003 til og með 30. september 2013. Við gildistöku gjaldskrárinnar falla úr gildi gjaldskrá nr. 80 frá 24. febrúar 1993 og auglýsing nr. 136 frá 27. febrúar 2003 um breytingu fyrir aukaverk presta.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið, 9. september 2003.
Björn Bjarnason
______________________
Hjalti Zóphóníasson
