Verkefni hópsins er einkum tvíþætt:
1. Að vera samráðsvettvangur og taka ákvörðun um málsmeðferð erinda er varða umkvartanir borgaranna yfir stjórnsýslu sveitarfélaga þar sem álitamál er um valdmörk ráðuneytanna.
2. Ákveða verklag um aðkomu ráðuneytanna vegna beiðna um staðfestingu á samningum um samvinnu sveitarfélaga, sbr. 93. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, 3. mgr. 5. gr. laga nr. 38/2018, um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, 3. mgr. 5. gr. laga nr. 40/1991, um félagsþjónustu sveitarfélaga og 1. mgr. 45. gr. laga um grunnskóla.
Starfshópurinn er þannig skipaður:
Hafdís Gísladóttir, lögfræðingur í innviðaráðuneytinu, formaður hópsins,
Theódóra Sigurðardóttir, lögfræðingur í mennta- og barnamálaráðuneytinu,
Rán Þórisdóttir, lögfræðingur í félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu.
Til vara eru Björn Ingi Óskarsson, lögfræðingur í innviðaráðuneytinu, Sigríður Lára Ásbergsdóttir, sérfræðingur í mennta- og barnamálaráðuneytinu, og Soffía Dóra Jóhannsdóttir, sérfræðingur í félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu. Með hópnum starfar Jóhanna Sigurjónsdóttir, sérfræðingur í innviðaráðuneytinu.
Starfshópurinn er skipaður ótímabundið.