Hoppa yfir valmynd

Stjórn Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar

Innviðaráðuneytið

Skv. 1. mgr. laga nr. 137/2019 um Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, sem samþykkt voru á alþingi 17. desember 2019.

4. gr. laganna hljóðar svo:

Með yfirstjórn Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar fer fimm manna stjórn sem ráðherra skipar til fimm ára í senn. Skulu formaður stjórnar og þrír stjórnarmenn skipaðir án tilnefningar en einn stjórnarmaður samkvæmt tilnefningu Sambands íslenskra sveitarfélaga. Tveir varamenn skulu skipaðir án tilnefningar. Ráðherra skipar formann stjórnar og ákveður þóknun stjórnarmanna.

Hlutverk stjórnar er að móta áherslur í starfi og fylgjast með starfsemi og rekstri Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Stjórnin setur sér starfsreglur þar sem nánar skal kveðið á um framkvæmd starfa stjórnarinnar. Í starfsreglum þessum skal m.a. fjallað sérstaklega um heimildir stjórnar til að taka ákvarðanir í einstökum málum og þátttöku stjórnarmanna í meðferð mála. Ráðherra skal staðfesta starfsreglur stjórnar Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Reglurnar skulu birtar opinberlega.

Formanni stjórnar Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar er óheimilt að taka að sér önnur störf fyrir stofnunina en þau sem teljast eðlilegur hluti starfa hans sem formaður stjórnar, að undanskildum einstökum verkefnum sem stjórnin felur honum að vinna fyrir sig.“

Yfirstjórn Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar er þannig skipuð:

  • Sigurjón Örn Þórsson - formaður
  • Björn Gíslason skipaður án tilnefningar
  • Elín Oddný Sigurðardóttir skipuð án tilnefningar
  • Herdís Sæmundardóttir, skipuð án tilnefningar
  • Jón Björn Hákonarson tilnefndur af sambandi íslenskra sveitarfélaga

Til vara:

  • Helgi Héðinsson
  • Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir

Stjórn Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar er skipuð til fimm ára frá 31. desember 2019

Ráð og stjórnir
Til baka
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum