Hoppa yfir valmynd

Verkefnastjórn um gerð landsáætlunar um innleiðingu á samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks

Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar kemur fram að lögfesta skuli samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (SRFF) á kjörtímabilinu. Landsáætlun um innleiðingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks verður megin verkfæri stjórnvalda í heildstæðri stefnumótun í málaflokki fatlaðs fólks og mun ná til allra þeirra málasviða sem falla undir samninginn.

Verkefnið verður unnið í víðtæku samráði og með þátttöku fatlaðs fólks, ráðuneyta, sveitarfélaga, hagsmunasamtaka, einstaklinga og almennings.

Formaður verkefnastjórnar er Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, verkefnastjóri er Þór Garðar Þórarinsson, sérfræðingur hjá félags- og vinnumarkaðsráðuneyti.

Að öðru leyti er verkefnastjórnin skipuð svo:

  • Elísabet Gísladóttir, varaformaður, tilnefnd af forsætisráðuneyti 
  • Guðlín Steinsdóttir, tilnefnd af heilbrigðisráðuneyti, 
  • Þór Hauksson Reykdal, tilnefndur af mennta- og barnamálaráðuneyti
  • Hlynur Hreinsson, tilnefndur af fjármálaráðuneytinu 
  • Valdís Ösp Árnadóttir, tilnefnd af innviðaráðuneyti
  • Halla Tinna Arnardóttir tilnefnd af dómsmálaráðuneyti
  • Arne Friðrik Karlsson, tilnefndur af Sambandi íslenskra sveitarfélaga  
  • María Ingibjörg Kristjánsdóttir, tilnefnd af Sambandi íslenskra sveitarfélaga
  • Alma Ýr Ingólfsdóttir, tilnefnd af Öryrkjabandalagi Íslands,
  • Héðinn Unnsteinsson, tilnefndur af Geðhjálp,
  •  Unnur Helga Óttarsdóttir, tilnefnd af Landssamtökunum Þroskahjálp
  • Laufey Elísabet Löve, tilnefnd af fötlunarfræði félagsvísindasviðs Háskóla Íslands

Til vara: 

  • Guðjón Björn Guðbjartsson, tilnefndur af forsætisráðuneyti
  • Ragnheiður Bóasdóttir, tilnefnd af mennta- og barnamálaráðuneyti
  • Marta Guðrún Skúladóttir, tilnefnd af fjármála- og efnahagsráðuneytinu 
  • Hanna Dóra Másdóttir, tilnefnd af innviðaráðuneytinu
  • Kjartan Jón Bjarnason, tilnefndur af dómsmálaráðuneytinu
  • Helga Jóna Benediksdóttir, tilnefnd af Sambandi íslenskra sveitarfélaga
  • Svala K. Hreinsdóttir, tilnefnd af Sambandi íslenskra sveitarfélaga
  • Þuríður Harpa Sigurðardóttir, tilnefnd af Öryrkjabandalagi Íslands
  • Árni Múli Jónasson, tilnefndur af Landsamtökunum Þroskahjálp
  • Hanna Björg Sigurjónsdóttir, tilnefnd af fötlunarfræði félagsvísindasviðs Háskóla Íslands

 Starfsmaður verkefnastjórnar er Anna Klara Georgsdóttir, sérfræðingur hjá félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu. 

Ekki er greidd þóknun fyrir setu í verkefnastjórninni af hálfu ráðuneytisins.

 
Tímabundnar nefndir
Til baka
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum