Hoppa yfir valmynd

Stýrihópur Stjórnarráðsins um byggðamál

Innviðaráðuneytið

Stýrihópur Stjórnarráðsins um byggðamál hefur það hlutverk að efla samhæfingu innan stjórnarráðsins í málefnum sem snúa að byggðamálum og trygga virkt samráð við sveitarstjórnarstigið í þeim málaflokki. Hópurinn er skipaður til þriggja ára í senn skv. 2. gr. laga um byggðaáætlun og sóknaráætlanir nr. 69/2015. Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra skipar í hópinn en í honum eru fulltrúar allra ráðuneyta og fulltrúi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Fulltrúi ráðherra byggðamála fer með formennsku í stýrihópnum.

Stýrihópurinn vinnur út frá þeirri skilgreiningu að byggðamál eru öll þau viðfangsefni sem hafa áhrif á lífsgæði og samkeppni landshluta, s.s. búsetu, atvinnu og nýsköpun. Þau snúa að eflingu samfélaga, félagsauðs, atvinnulífs, menntunar, menningar, velferðarmála, samgangna og fjarskipta. Samkvæmt þessari skilgreiningu eru byggðamál viðfangsefni allra ráðuneyta með einhverjum hætti og ná til landsins alls.

Stýrihópur Stjórnarráðsins um byggðamál er þannig skipaður:

Frá innviðaráðuneyti

Aðalfulltrúi: Hólmfríður Sveinsdóttir, formaður
Varafulltrúi: Árni Freyr Stefánsson

Frá dómsmálaráðuneyti

Aðalfulltrúi: Elísabet Linda Þórðardóttir
Varafulltrúi: Guðmundur Bjarni Ragnarsson

Frá félags- og vinnumarkaðsráðuneyti

Aðalfulltrúi: Eva Margrét Kristinsdóttir
Varafulltrúi: Þór Hauksson Reykdal

Frá forsætisráðuneyti

Aðalfulltrúi: Pétur Berg Matthíasson
Varafulltrúi: Sigrún Ólafsdóttir

Frá fjármála- og efnahagsráðuneyti

Aðalfulltrúi: Anna Borgþórsdóttir Olsen
Varafulltrúi: Nökkvi Bragason

Frá háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti

Aðalfulltrúi: Anna Katrín Einarsdóttir
Varafulltrúi: Þórarinn Sólmundarson

Frá heilbrigðisráðuneyti

Aðalfulltrúi: Bryndís Þorvaldsdóttir
Varafulltrúi: Arnar Þór Sveinsson

Frá matvælaráðuneyti

Aðalfulltrúi: Bryndís Eiríksdóttir
Varafulltrúi: Bjarki Pjetursson

Frá menningar- og viðskiptaráðuneyti

Aðalfulltrúi: Baldur Þórir Guðmundsson
Varafulltrúi: Sunna Þórðardóttir.

Frá mennta- og barnamálaráðuneyti

Aðalfulltrúi: Hafþór Einarsson
Varafulltrúi: Sigurlaug Ýr Gísladóttir

Frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti

Aðalfulltrúi: Magnús Örn Agnesar Sigurðsson
Varafulltrúi: Dagný Arnardóttir

Frá utanríkisráðuneyti

Aðalfulltrúi: Andri Júlíusson
Varafulltrúi: vantar

Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga

Aðalfulltrúi: Valgerður Rún Benediktsdóttir
Varafulltrúi: Karl Björnsson

Verkefnisstjóri stýrihópsins er Sigríður K. Þorgrímsdóttir, Byggðastofnun. Þá eiga Byggðastofnun og samtök landshlutasamtaka sveitarfélaga áheyrnarfulltrúa á fundum stýrihópsins.

Skipunartími er til 31. maí 2024.

Meðal verkefna stýrihópsins samkvæmt erindisbréfi er að:

  • Vera ríkisstjórn til ráðgjafar í byggðamálum.
  • Auka samráð ráðuneyta á sviði byggðamála.
  • Vinna að því að samhæfa byggðamál að annarri stefnumótun og áætlanagerð hins opinbera þannig að horft sé til byggðaþróunar með heilstæðum hætti.
  • Hafa aðkomu að gerð byggðaáætlunar og fylgjast með framvindu hennar.
  • Styðja landshlutasamtök sveitarfélaga við gerð og framkvæmd sóknaráætlana landshluta.
  • Vinna með landshlutasamtökum sveitarfélaga að því að sóknaráætlanir verði farvegur fyrir samstarf ríkis og sveitarfélaga um framkvæmd byggðaáætlunar og stuðla að því að fella fleiri viðfangsefni og samninga að sóknaráætlunum.
  • Staðfesta sóknaráætlanir landshluta og áhersluverkefni þeirra.
  • Vinna árlega greinargerð um framvindu sóknaráætlanasamninga og ráðstöfun fjármuna.
  • Vinna drög að viðmiðunarreglum vegna útdeilingar framlags ríkisins til sóknaráætlana og leggja fyrir ráðherra. 
  • Hafa almennt samráð og samskipti um framkvæmd sóknaráætlunarsamninga og fylgja eftir ákvæðum samninga um skil og upplýsingagjöf. 

Smellið hér til að skoða fundargerðir stýrihópsins

Fastanefndir
Til baka
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum