Nauðasamninganefnd

Nauðasamninganefnd starfar á grundvelli laga um réttaraðstoð við einstaklinga sem leita nauðasamninga nr. 65, 1996. Sá sem vill leita réttaraðstoðar skal beina skriflegri umsókn um það til innanríkisráðherra. Ráðherra beinir umsóknunum til nefndarinnar, sem hefur það hlutverk að veita ráðherra umsagnir um þær. Nefndin fer yfir umsóknirnar og fylgigögn. Telji nefndin líkur á að umsækjandi geti ráðið bót á fjárhagsörðugleikum sínum með nauðasamningi, þar á meðal að samningurinn muni fást staðfestur, getur hún lagt til við ráðherra að réttaraðstoð verði veitt. Ráðherra veitir réttaraðstoð, en getur ekki gert það nema nefndin mæli með því. Í þágu þess, sem veitt er réttaraðstoð, er greiddur úr ríkissjóði kostnaður við að leita nauðasamnings ásamt tryggingu fyrir kostnaði við undirbúning og gerð nauðasamnings. Réttaraðstoð getur ekki numið hærri fjárhæð samanlagt en kr. 250.000 handa hverjum umsækjanda miðað við vísitölu neysluverðs 1. febrúar 1996, 174,9 stig.

Í innanríkisráðuneytinu liggja frammi umsóknareyðublöð og leiðbeiningar fyrir þá, sem leita vilja réttaraðstoðar. Mikilvægt er að farið sér eftir leiðbeiningunum, umsóknareyðublöðin fyllt nákvæmlega út og jafnframt að þau gögn fylgi umsókninni, sem tilskilið er. Flýtir þetta fyrir afgreiðslu umsókna hjá nefndinni og kemur í veg fyrir óþarfa tafir vegna gagnaöflunar eftir að umsóknir hafa borist.

Umsókn um réttaraðstoð til að leita nauðasamninga (Word)
Upplýsingar um réttaraðstoð til að leita nauðasamninga og leiðbeiningar með umsókn (PDF)


Frekari upplýsingar gefur Hermann Sæmundsson, skrifstofustjóri netfang: hermann.saemundsson@irr.is

Nefndina skipa til fjögurra ára frá 1. júlí 2008:

  • Egill Stephensen, saksóknari, formaður, án tilnefningar
    Varamaður: Guðrún Björk Bjarnadóttir, héraðsdómslögmaður
  • Haraldur Steinþórsson, lögfræðingur, tilnefndur af fjármálaráðherra
    Varamaður: Sóley Ragnarsdóttir, lögfræðingur
  • Óskar Páll Óskarsson, lögfræðingur, tilnefndur af félagsmálaráðherra
    Varamaður: Rán Ingvarsdóttir, lögfræðingur





Tungumál


Flýtival



Þetta vefsvæði byggir á Eplica