Hoppa yfir valmynd

07 Nýsköpun, rannsóknir og þekkingargreinar

Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið
Matvælaráðuneytið
Menningar- og viðskiptaráðuneytið
Forsætisráðuneytið

Skilgreining málefnasviðs

Starfsemi á þessu málefnasviði er á ábyrgð fjögurra ráðherra. Forsætisráðherra ber ábyrgð á starfsemi Vísinda- og nýsköpunarráðs. Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra ber ábyrgð á vísindum, nýsköpun og hugverkaiðnaði. Menningar- og viðskiptaráðherra ber ábyrgð á málefnum skapandi greina og faggildingar ásamt endurgreiðslum vegna kvikmyndagerðar og hljóðritunar á tónlist. Matvælaráðherra ber ábyrgð á málefnum Matvælasjóðs.

Málefnasviðið skiptist í tvo málaflokka sem sjá má í eftirfarandi töflu. Þar má jafnframt sjá fjárhagslega þróun málefnasviðsins og einstakra málaflokka á tímabilinu 2022–2024. Helstu áherslum, framtíðarsýn og meginmarkmiðum á málefnasviðinu er lýst í fjármálaáætlun.

Fjárhagsleg þróun málefnasviðsins og einstakra málaflokka á tímabilinu 2022–2024

Útgjaldarammi – heildaryfirlit og breytingar eftir tilefnum

Myndin hér á eftir sýnir sundurliðaðar breytingar á útgjaldaramma málefnasviðsins eftir helstu tilefnum, sem nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða.

Breytingar á ramma milli áranna 2023 og 2024

Heildargjöld málefnasviðs 07 Nýsköpun, rannsóknir og þekkingargreinar árið 2024 eru áætluð 31.506,3 m.kr. og lækka um 3.721,5 m.kr. á föstu verðlagi fjárlaga 2023, eða sem svarar til 10,7%. Þegar tekið er tillit til áhrifa af almennum launa- og verðlagsbreytingum lækka útgjöldin um 3.385,9 m.kr. milli ára, eða sem svarar til 9,7%.

Myndin endurspeglar þá útfærslu og forgangsröðun sem unnin er út frá stefnumótun málefnasviðsins. Sú niðurstaða getur eftir atvikum vikið frá þeim viðmiðum sem sett voru í fjármálaáætlun, til að mynda þannig að nýju útgjaldasvigrúmi hafi að einhverju leyti verið jafnað á móti aðhaldsmarkmiði. Aðhaldsmarkmiðið felur m.a. í sér sértækar afkomubætandi aðhaldsráðstafanir á málefnasviðum og er nánar fjallað um þær í kafla 5 Gjöld ríkissjóðs.

Útgjaldarammi - hagræn skipting útgjalda

Í eftirfarandi töflu eru útgjöld málefnasviðsins, þróun fjárheimilda og fjármögnun frá árinu 2022 greind í fjóra þætti eftir hagrænni skiptingu, eins og nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða. Hagræn skipting útgjalda niður á málaflokka birtist í fylgiriti með fjárlögum.

Útgjöld málefnasviðsins, þróun fjárheimilda og fjármögnun frá árinu 2022 greind í fjóra þætti eftir hagrænni skiptingu

07.10 Vísindi og samkeppnissjóðir í rannsóknum

Málaflokkurinn nær yfir starfsemi Vísinda- og nýsköpunarráðs, samkeppnissjóði á sviðum vísinda og nýsköpunar, s.s. Rannsóknasjóð og Tækniþróunarsjóð, stefnumótandi fjármögnun, svo sem Markáætlun, Innviðasjóð og Matvælasjóð, og samstarfsáætlun ESB 2023–2027 um rannsóknir og nýsköpun. Nánar er fjallað um málaflokkinn í fjármálaáætlun, þar á meðal ábyrgðarskiptingu, helstu áskoranir og tækifæri, markmið og mælikvarða um árangur o.fl. Tengsl eru milli áskorana, tækifæra, markmiða og verkefna í málaflokki 7.1 og á málefnasviði 21.

Í eftirfarandi töflu má sjá helstu verkefni málaflokksins árið 2024 og tengingu þeirra við markmið ásamt helstu breytingum sem verða á fjárveitingum á milli ára. Eingöngu eru sýndar breytingar sem verða á fjárveitingum til verkefna frá fjárlögum ársins 2023. Þannig endurspegla fjárhæðir ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.

 

Helstu verkefni 2024

Framkvæmdaraðili

Breyting á fjárveitingu til verkefnis

Markmið 1: Vísindastarf á heimsmælikvarða

Endurskoðun sjóðakerfis rannsókna og nýsköpunar í þágu einföldunar, aukinnar hagkvæmni, minni yfirbyggingar og betri þjónustu.

Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti

Innan ramma

Stefna og aðgerðaáætlun um opinn aðgang að rannsóknagögnum og niðurstöðum.

Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti

Innan ramma

Markmið 2: Hagnýting hugvits og nýskapandi lausnir á brýnum samfélagslegum áskorunum

Mótun starfsemi nýstofnaðs Vísinda- og nýsköpunarráðs, þ.m.t. undirbúningur að framtíðarsýn til 10 ára.

Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytiog forsætisráðuneyti

Innan ramma

Mat á árangri úthlutunar úr Innviðasjóði út frá fyrsta Vegvísi um rannsóknarinnviði og undirbúningur að nýjum Vegvísi.

Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti

Innan ramma

Mótun stefnu og aðgerða um Markáætlun í þágu samfélagslegra áskorana í samstarfi við Vísinda- og nýsköpunarráð.

Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti

Innan ramma

Stuðningur við þróun og hagnýtingu máltæknilausna
í gegnum Markáætlun í tungu og tækni.

Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti og menningar- og viðskiptaráðuneyti

Innan ramma

Markmið 3: Virkt alþjóðlegt samstarf á sviði menntunar, vísinda og nýsköpunar

Áframhaldandi uppbygging samstarfsverkefna í tengslum við ESB-áætlun, þar á meðal Digital, Horizon, Erasmus+ og InvestEU.

Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti í samstarfi við önnur ráðuneyti

 

Innan ramma

Markviss þátttaka stjórnvalda og stofnana í alþjóðasamstarfi og stefnumörkun á sviði vísinda, menntunar og nýsköpunar.

Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti

 

Innan ramma

     

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2024 er áætluð 12.329,5 m.kr. og lækkar um 2.399,6 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 257 m.kr.

Ekki er um miklar breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.

Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:

  1. Tímabundin framlög vegna heimsfaraldurs kórónuveiru til samkeppnissjóða í rannsóknum, nýsköpun og tækniþróun (Rannsóknasjóðs, Tækniþróunarsjóðs og Innviðasjóðs) sem nema 2.925 m.kr. falla niður. Á móti er fjárveiting hækkuð varanlega um 2.052 m.kr. sem skiptist jafnt milli Rannsóknasjóðs og Tækniþróunarsjóðs að undanskildum 50 m.kr. framlagi sem flutt var á Innviðasjóð til að stuðla að frekari fjárfestingu í rannsóknarinnviðum á Íslandi.
  2. Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins nemur 427,2 m.kr. og er skipt hlutfallslega niður á stofnanir og verkefni málaflokksins.

07.20 Nýsköpun, samkeppni og þekkingargreinar

Málaflokkurinn nær yfir stuðningsumhverfi og aðgerðir í þágu nýsköpunar, hugvitsiðnaðar og skapandi greina. Undir málaflokkinn heyra m.a. Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins, Hugverkastofa, Kría sprota- og nýsköpunarsjóður, styrkir til nýsköpunarfyrirtækja í formi skattendurgreiðslna vegna rannsókna og þróunar, og endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar og hljóðritunar á tónlist.

Nánar er fjallað um málaflokkinn í fjármálaáætlun, þar á meðal ábyrgðarskiptingu, helstu áskoranir og tækifæri, markmið og mælikvarða um árangur o.fl.

Í eftirfarandi töflu má sjá helstu verkefni málaflokksins árið 2024 og tengingu þeirra við markmið ásamt helstu breytingum sem verða á fjárveitingum á milli ára. Eingöngu eru sýndar breytingar sem verða á fjárveitingum til verkefna frá fjárlögum ársins 2023. Þannig endur­spegla fjárhæðir ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.

 

Helstu verkefni 2024

Framkvæmdaraðili

Breyting á fjárveitingu til verkefnis

Markmið 1: Bætt samkeppnisstaða í alþjóðlegu samhengi

Endurskoðun regluverks um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki, í samræmi við niðurstöður úttektar OECD á skattendurgreiðslum vegna rannsókna og þróunar.

Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti og fjármála- og efnahagsráðuneyti

Innan ramma

Endurskoðun á stuðningsumhverfi opinberrar fjármögnunar nýsköpunar, þ.m.t. NSA, Kríu
og styrktarsjóða nýsköpunar.

Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti

Innan ramma

Innleiðing stefnu í málefnum hönnunar og arkitektúrs.

Menningar- og viðskiptaráðuneyti

53 m.kr.

Þróun Rannsóknaseturs skapandi greina.

Menningar- og viðskiptaráðuneyti

Innan ramma

Áframhaldandi stuðningur við kvikmyndagerð og hljóðritun tónlistar á Íslandi í formi endurgreiðslna á framleiðslukostnaði.

Menningar- og viðskiptaráðuneyti

Innan ramma

Markmið 2: Aukin hagnýting tæknilausna í þágu samfélagslegra áskorana

Samstarfsverkefni háskóla, heilbrigðisstofnana og atvinnulífs um innleiðingu nýsköpunar í heil­brigðisvísindum, s.s. hermiseturs í
kennslu og notkun gervigreindar við vöktun sjúklinga (sbr. málefnasvið 21).

Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti og heilbrigðisráðuneyti

Innan ramma

Sameiginleg upplýsingagátt sjóða í samstarfi við Stafrænt Ísland og Rannís.

Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti

Innan ramma

Nýsköpunargátt – upplýsingavefur um stuðningsumhverfi nýsköpunar.

Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti

Innan ramma

Markmið 3: Ný og fjölbreytt störf skapist í þekkingargreinum

Efling nýsköpunar á landsbyggðinni, með áherslu á stuðning við sprota- og frumkvöðlafyrirtæki á sviði hátækni – Lóa og Stafrænar smiðjur.

Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti

Innan ramma

Fjölgun háskólanemenda, t.d. í heilbrigðisvísindum, kvikmynda- og tölvuleikjagerð og netöryggi. Þróun raunfærnimats á háskólastigi
(sbr. málefnasvið 21).

Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti

Innan ramma

Markvissar aðgerðir, s.s. einföldun regluverks, íslenskunám o.fl. sem gera erlendum sérfræðingum og fjölskyldum þeirra kleift að búa og starfa hér á landi.

Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti

Innan ramma

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2024 er áætluð 19.176,8 m.kr. og lækkar um 1.321,9 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 78,6 m.kr.

Ekki er um miklar breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.

Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:

  1. Gert er ráð fyrir að árlegur vöxtur útgjalda vegna aukinnar ásóknar fyrirtækja í endurgreiðslur vegna rannsókna og þróunar sé 14,5%, sem gera 1.915,5 m.kr. á árinu 2024. Það er í samræmi við áætlun frá Rannís sem byggir á sögulegri þróun. Gert er ráð fyrir svipuðum vexti árið 2025. Árið 2026 falla úr gildi tímabundin ákvæði í lögum sem veldur því að endurgreiðsluhlutfall lækkar og þak á hámarksgreiðslum til fyrirtækja lækkar.
  2. Fjárheimild málaflokksins er aukin tímabundið um 53,2 m.kr. vegna aðgerða í hönnunarstefnu. Aðgerðirnar eru fjármagnaðar af tímabundnu fjárfestingarátaki ríkisstjórnarinnar til menningarmála.
  3. Fjárheimild málaflokksins er aukin um 776 m.kr. í formi varanlegs framlags til endurgreiðslna vegna kvikmyndagerðar á Íslandi til að styðja við aukinn fyrirsjáanleika í fjármögnun kerfisins.
  4. Fjárheimild málaflokksins lækkar um 4.000 m.kr. vegna tímabundinnar fjárveitingar til endurgreiðslna vegna kvikmyndagerðar sem veitt var á árinu 2023 til að mæta áætlaðri fjárþörf kerfisins það árið og fellur nú niður.
  5. Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins nemur 136,7 m.kr. og er hlutfallslega á stofnanir og verkefni málaflokksins fyrir utan ýmis framlög til hönnunarmála vegna áherslna á aðgerðir hönnunarstefnu.
Til baka
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum