Hoppa yfir valmynd

23 Sjúkrahúsþjónusta

Heilbrigðisráðuneytið

Skilgreining málefnasviðs

Starfsemi á þessu málefnasviði er á ábyrgð heilbrigðisráðherra. Það skiptist í þrjá málaflokka sem sjá má í eftirfarandi töflu. Þar má jafnframt sjá fjárhagslega þróun málefnasviðsins og einstakra málaflokka á tímabilinu 2022–2024. Helstu áherslum, framtíðarsýn og meginmarkmiðum á málefnasviðinu er lýst í fjármálaáætlun.

Fjárhagsleg þróun málefnasviðsins og einstakra málaflokka á tímabilinu 2022–2024

Útgjaldarammi - heildaryfirlit og breytingar eftir tilefnum

Myndin hér á eftir sýnir sundurliðaðar breytingar á útgjaldaramma málefna­sviðsins eftir helstu tilefnum sem nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða.

Breytingar á ramma milli áranna 2023–2024

Heildargjöld málefnasviðs 23 Sjúkrahúsþjónusta árið 2024 eru áætluð 164.752,1 m.kr. og aukast um 12.087,2 m.kr. á föstu verðlagi fjárlaga 2023 eða sem svarar til 8,4%. Þegar tekið er tillit til áhrifa af almennum launa- og verðlagsbreytingum hækka útgjöldin um 21.275 m.kr. milli ára eða sem svarar til 14,8 %.

Myndin endurspeglar þá útfærslu og forgangsröðun sem unnin er út frá stefnumótun málefnasviðsins. Sú niðurstaða getur eftir atvikum vikið frá þeim viðmiðum sem sett voru í fjármálaáætlun, t.a.m. þannig að nýju útgjaldasvigrúmi hafi að einhverju leyti verið jafnað á móti aðhaldsmarkmiði. Aðhaldsmarkmiðið felur m.a. í sér sértækar afkomubætandi aðhaldsráðstafanir á málefnasviðum og er nánar fjallað um þær í kafla 5 Útgjöld ríkissjóðs.

Útgjaldarammi - hagræn skipting útgjalda

Í eftirfarandi töflu eru útgjöld málefnasviðsins, þróun fjárheimilda og fjármögnun frá árinu 2022 greind í fjóra þætti eftir hagrænni skiptingu, eins og nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða. Hagræn skipting útgjalda niður á málaflokka birtist í fylgiriti með fjárlögum.

Útgjöld málefnasviðsins, þróun fjárheimilda og fjármögnun frá árinu 2022 greind í fjóra þætti eftir hagrænni skiptingu

23.1 Sérhæfð sjúkrahúsþjónusta

Starfsemi málaflokksins er í höndum heilbrigðisráðuneytis, Landspítala (LSH) og Sjúkrahússins á Akureyri (SAk). Nánar er fjallað um málaflokkinn í fjármálaáætlun, þar á meðal ábyrgðarskiptingu, helstu áskoranir og tækifæri, markmið og mælikvarða um árangur, o.fl.

Í eftirfarandi töflu má sjá helstu verkefni málaflokksins árið 2024 og tengingu þeirra við markmið ásamt helstu breytingum sem verða á fjárveitingum á milli ára. Eingöngu eru sýndar breytingar sem verða á fjárveitingum til verkefna frá fjárlögum ársins 2023. Þannig endur­spegla fjárhæðir ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.

 

Helstu verkefni 2024

Framkvæmdaraðili

Breyting á fjárveitingu til verkefnis

Markmið 1: Efla mönnun

Vinna áfram með þær tillögur sem enn eru í vinnslu frá vinnu fjögurra vinnuhópa frá árinu 2020, m.a. í samstarfi með Landsráði um mönnun og menntun í heilbrigðisþjónustu. Þær tillögur sem enn er unnið með eru einkum stærri tillögur sem hafa krafist mikils undirbúnings og lengri tíma.

Heilbrigðisráðuneyti

Innan ramma

Vinna úr og fylgja eftir niðurstöðum viðbragðsteymis um bráðaþjónustu.

Heilbrigðisráðuneyti og stofnanir sem sinna sjúkrahúsþjónustu

Innan ramma

Uppsteypa meðferðakjarna lýkur fyrri hluta árs 2024. Framkvæmdir við uppsteypu rannsóknahúss og bílastæðahúsa við Hringbraut ásamt klæðningu útveggja meðferðakjarna. Einnig hefjast framkvæmdir við endurhæfingardeildina við Grensás. Þá verður gert endurmat á þarfagreiningu fyrir legudeildarhús Sjúkrahússins á Akureyri.

Áætlað heildarumfang verkefnisins er um 210 m.kr.

Nýr Landspítali ehf.

10.531 m.kr.

Markmið 2: Sjúklingar fái heilbrigðisþjónustu á réttu þjónustustigi

Vinna áfram að eflingu fjölþættra úrræða fyrir sjúklinga utan sérgreinasjúkrahúsa.

Heilbrigðisráðuneyti og heilbrigðisstofnanir

Innan ramma

Markmið 3: Að sjúklingar í brýnni þörf fái heilbrigðisþjónustu innan ásættanlegs biðtíma

Vinna að því að koma á fót samræmdum biðlistum fyrir sem flesta þætti þjónustu innan sérgreinasjúkrahúsa.

Embætti landlæknis, LSH og Sjúkrahúsið á Akureyri

Innan ramma

Áframhaldandi vinna við útvistun þeirra verkefna sem leysa má á öðrum þjónustustigum en sérgreinasjúkrahúsum, til að auka getu sérgreinasjúkrahúsa til að anna þeim verkefnum sem þau ein geta leyst.

Heilbrigðisráðuneyti, LSH, Sjúkrahúsið á Akureyri og SÍ

Innan ramma

     

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2024 er áætluð 144.613,8 m.kr. og hækkar um 11.589 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 7.975,6 m.kr.

Ekki er um miklar breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.

Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:

  1. Fjárheimild málaflokksins er aukin um 10.531 m.kr. vegna byggingar nýs Landspítala sbr. markmið nr. 1. Helstu verkefnin felast í því að ljúka við uppsteypu meðferðar­kjarna og að klæða húsið að utan. Einnig að steypa upp rannsóknahúss og bílastæðahús við Hringbraut. Þá er áformað að bjóða út framkvæmdir við Endurhæfingardeildina við Grensás og að vinna að endurmati þarfagreiningar fyrir legudeild við Sjúkrahúsið á Akureyri.
  2. Reiknaður raunvöxtur í veittri þjónustu innan málaflokksins er 1.756 m.kr.
  3. Almennt útgjaldasvigrúm málaflokksins er 980 m.kr.
  4. Fjárheimild málaflokksins er aukin um 75 m.kr. til styrkingar teymis um kynvitund og breytingar á kyneinkennum á LSH til að stytta biðtíma svo hann verði innan viðmiðunarmarka embættis landlæknis.
  5. Fjárheimild málaflokksins lækkar um 995 m.kr. vegna samsvarandi breytinga á rekstrartekjum.

  6. Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins nemur 723 m.kr.
  7. Fjárheimild málaflokksins er aukin um 565 m.kr. vegna byggingar legudeildar við Sjúkrahúsið á Akureyri.
  8. Fjárheimild málaflokksins er lækkuð tímabundið um 600 m.kr. vegna frestunar á framkvæmdum við nýja legudeild við Sjúkrahúsið á Akureyri. Aðgerðin er hluti af sértækum aðhaldsráðstöfunum. Gert er ráð fyrir að seinka framkvæmdum um eitt ár. Áfram er gert ráð fyrir undirbúningskostnaði 2024.

23.2 Almenn sjúkrahúsþjónusta

Starfsemi málaflokksins er í höndum heilbrigðisstofnana í heilbrigðisumdæmum. Landspítalinn og Sjúkrahúsið á Akureyri veita annars stigs sjúkrahúsþjónustu fyrir íbúa sem búa í heilbrigðisumdæmum höfuðborgarsvæðisins og á Norðausturlandi en allar fjárveitingar til þessara tveggja stofnana eru undir málaflokki 23.1. Nánar er fjallað um málaflokkinn í fjármálaáætlun, þar á meðal ábyrgðarskiptingu, helstu áskoranir og tækifæri, markmið og mælikvarða um árangur o.fl.

Í eftirfarandi töflu má sjá helstu verkefni málaflokksins árið 2024 og tengingu þeirra við markmið ásamt helstu breytingum sem verða á fjárveitingum á milli ára. Eingöngu eru sýndar breytingar sem verða á fjárveitingum til verkefna frá fjárlögum ársins 2023. Þannig endurspegla fjárhæðir ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.

 

Helstu verkefni 2024

Framkvæmdaraðili

Breyting á fjárveitingu til verkefnis

Markmið 1: Efla aðgang sjúklinga að skilgreindri sérhæfðri heilbrigðisþjónustu á heilbrigðisstofnunum

 

Skýra verklag um veitingu sérhæfðrar heilbrigðisþjónustu á heilbrigðisstofnunum í samstarfi heilbrigðisstofnana, Sjúkratrygginga Íslands og sérhæfðra sjúkrahúsa.

Heilbrigðisráðuneyti, heilbrigðisstofnanir, Landspítali og Sjúkrahúsið á Akureyri

Innan ramma

Markmið 2: Efla sérhæfða ráðgjafaþjónustu til stuðnings við fagaðila sem sinna börnum og unglingum í heimabyggð

 

Skýra verklag og samvinnu annars stigs þjónustu við sérgreinasjúkrahús.

Heilbrigðisstofnanir, Landspítali og Sjúkrahúsið á Akureyri

Innan ramma

Setja á fót fjarheilbrigðisþjónustuteymi sem veitir ráðgjöf og handleiðslu til heilbrigðisstofnana á landsvísu og tryggja þannig aðgengi að sérhæfðri þjónustu þegar við á.

Heilbrigðisstofnanir, Landspítali og Sjúkrahúsið á Akureyri

Innan ramma

Markmið 3: Sjúklingar komist í liðskiptaaðgerðir innan ásættanlegs biðtíma miðað við viðmið embættis landlæknis

 

Eftirfylgni við innleiðingu nýs vinnulags varðandi liðskiptaaðgerðir samkvæmt niðurstöðum starfshóps frá því í mars 2022.

Heilbrigðisráðuneyti, embætti landlæknis, Landspítali, Sjúkrahúsið á Akureyri og Heilbrigðisstofnun Vesturlands

Innan ramma

     

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2024 er áætluð 15.895,4 m.kr. og lækkar um 440,6 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 1.046,5 m.kr.

Ekki er um miklar breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.

Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:

  1. Fjárheimild málaflokksins er aukin um 800 m.kr. vegna styrkingar sjúkrasviða á landsbyggðinni.
  2. Fjárheimild málaflokksins er aukin um 200 m.kr. vegna nýrrar og endurbættrar bráðamóttöku Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja.
  3. Reiknaður raunvöxtur í veittri þjónustu innan málaflokksins er 214,3 m.kr.
  4. Felldar eru niður 850 m.kr. af viðbótarfjárveitingu til framkvæmda við sjúkrahúsið á Selfossi vegna breytinga á verkáætlun en 704 m.kr. er hliðrað um eitt ár vegna frestunar á framkvæmdum við sjúkrahúsið.
  5. Fjárheimild málaflokksins lækkar um 18 m.kr. vegna samsvarandi breytinga á rekstrartekjum.
  6. Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins nemur 83,1 m.kr.

23.3 Erlend sjúkrahúsþjónusta

Starfsemi málaflokksins er í höndum Sjúkratrygginga Íslands sem sjá um samningagerð við erlend sjúkrahús ásamt því að hafa milligöngu um greiðslur fyrir heilbrigðisþjónustu milli landa þar sem milliríkjasamningar gilda. Nánar er fjallað um málaflokkinn í fjármálaáætlun, þar á meðal ábyrgðarskiptingu, helstu áskoranir og tækifæri, markmið og mælikvarða um árangur o.fl.

Í eftirfarandi töflu má sjá helstu verkefni málaflokksins árið 2024 og tengingu þeirra við markmið ásamt helstu breytingum sem verða á fjárveitingum á milli ára. Eingöngu eru sýndar breytingar sem verða á fjárveitingum til verkefna frá fjárlögum ársins 2023. Þannig endurspegla fjárhæðir ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.

 

Helstu verkefni 2024

Framkvæmdaraðili

Breyting á fjárveitingu til verkefnis

Markmið 1: Aðgerðir sem áður voru gerðar erlendis á grundvelli biðtímareglugerðarinnar eru framkvæmdar hérlendis

Stytta biðlista eftir aðgerðum þjónustu með fjölgun aðgerða sem framkvæmdar eru hér á landi, bæði á vegum opinberra aðila og einkaaðila. Áætlun verði gerð um flutning aðgerða til landsins m.t.t. nýtingar bjarga hérlendis, þ.m.t. fjármagns sem nú er nýtt til þjónustu erlendis.

Heilbrigðisráðuneyti og Sjúkratryggingar Íslands, sjúkrahús og heilbrigðisstofnanir

Innan ramma

     

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2024 er áætluð 4.242,9 m.kr. og hækkar um 938,8 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa-, gengis- og verðlags­breytingum en þær nema 165,7 m.kr.

Ekki er um miklar breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.

Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:

  1. Reiknaður raunvöxtur í veittri þjónustu innan málaflokksins er 62,8 m.kr.
  2. Fjárheimild málaflokksins er aukin um 876 m.kr. til að mæta kerfislægum vexti í meðferðum og sjúkrakostnaði.
Til baka
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum