Hoppa yfir valmynd
13. september 2010 Dómsmálaráðuneytið

Próf í íslensku fyrir umsækjendur um íslenskan ríkisborgararétt

Íslenskupróf vegna umsóknar um íslenskan ríkisborgararétt verða næst haldin á vegum Námsmatsstofnunar í desember nk. og er skráning hafin.

Íslenskupróf vegna umsóknar um íslenskan ríkisborgararétt verða næst haldin á vegum Námsmatsstofnunar í desember nk. og er skráning hafin.  Prófin verða haldin á höfuðborgarsvæðinu 6.-10.desember og á eftirtöldum stöðum á landsbyggðinni: Ísafirði 2. desember, Akureyri 6. desember og Egilsstöðum 7. desember.

Skráning í prófin fer fram með rafrænum hætti á vef Námsmatsstofnunar, www.namsmat.is, til og með 10. nóvember. Gjald fyrir þátttöku í prófi er 7.000 krónur sem greiða skal í síðasta lagi 10. nóvember inn á reikning Námsmatsstofnunar. Upplýsingar þar að lútandi er að finna á vef stofnunarinnar.

Sjá nánar á vefnum www.namsmat.is. Einnig eru veittar upplýsingar í síma 550 2400.

Auglýsing um próf í íslensku fyrir umsækjendur um íslenskan ríkisborgararétt (pdf)

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum