Hoppa yfir valmynd
29. september 2016 Dómsmálaráðuneytið

Ráðstefna um réttarstöðu og velferð barna við andlát foreldris

Ráðstefna um réttarstöðu og velferð barna við andlát foreldris verður haldin í Norræna húsinu í Reykjavík miðvikudaginn 12. október næstkomandi og stendur frá klukkan 9 til 12. Verður þar fjallað um rannsóknir á stöðu barna við slíkar aðstæður, íslensk lög sem málið snerta, sagt frá tilraunaverkefni og endað á pallborðsumræðum um efnið.

Að ráðstefnunni standa innanríkisráðuneyti og velferðarráðuneyti í samstarfi við Rannsóknarstofnun í barna- og fjölskylduvernd við félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands. Markmið ráðstefnunnar er meðal annars að miðla þekkingu um stöðu málefnisins, vekja umræðu og hafa áhrif til umbóta á réttarstöðu ungra barna og þjónustuúrræðum fyrir fjölskyldur.

Ólöf Nordal innanríkisráðherra setur ráðstefnuna og síðan verða flutt erindi um efnið og í lok dagskrár verða pallborðsumræður. Ráðstefnan er öllum opin og er aðgangur ókeypis.

Dagskrá ráðstefnunnar:

 Réttarstaða og velferð barna við andlát foreldris

Norræna húsinu í Reykjavík 12. október kl. 09:00–12:00

Fundarstjóri:      Anna Rós Jóhannesdóttir, yfirfélagsráðgjafi Landspítalans.

09:00 – 09:10    Setning: Ólöf Nordal, innanríkisráðherra. 

09:10 – 09:40    Rannsóknin: Staða barna við andlát móður úr krabbameini – raddir barnanna: Sigrún Júlíusdóttir, prófessor við félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands.

09:40 - 10:00     Íslensk löggjöf sem snertir rétt og velferð barna við andlát foreldris: Hrefna Friðriksdóttir, prófessor í fjölskyldu- og erfðarétti við lagadeild Háskóla Íslands.

10:00 - 10:20     Kaffihlé 

10:20 - 10:40     Niðurstöður lokaritgerða við félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands um stöðu barna við andlát foreldris: Edda Jóhannsdóttir, Elfa María Geirsdóttir og Sólveig Björg Arnarsdóttir.

10:40 - 11:00     Sjálfstæður réttur barns í sjúkdómsferli og við andlát foreldris: Vigfús Bjarni Albertsson, sjúkrahúsprestur á Landspítala.

11:00 - 11:20     Forvarnir – tilraunaverkefni á Landspítala tengt Fjölskyldubrúnni: Gunnlaug Thorlacius, formaður Geðverndarfélags Íslands, félagsráðgjafi á Landspítala.

11:20 - 11:50     Panel umræður: Séra Bragi Skúlason, Dögg Pálsdóttir, lögfræðingur, Elísabet Gísladóttir, lögfræðingur hjá umboðsmanni barna, Halldóra Hálfdánardóttir, deildarstjóri hjúkrunar krabbameinsdeildar Landspítalans, Sigurður Rafn Levy, sálfræðingur á barna- og unglingageðdeild, Valgerður Sigurðardóttir, yfirlæknir á líknardeild Landspítalans  og Þóra Jónsdóttir, lögfræðingur hjá Barnaheillum – Save the Children á Íslandi.

11:50 – 12:00    Lokaorð: Jón Bjarnason, fyrrverandi þingmaður og ráðherra.

12:00                 Ráðstefnulok

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum