Hoppa yfir valmynd
26. maí 2016 Dómsmálaráðuneytið

Skýrsla um framtíð Hegningarhússins við Skólavörðustíg

Vegna umfjöllunar um framtíð Hegningarhússins við Skólavörðustíg í Reykjavík minnir innanríkisráðuneytið á skýrslu starfshóps sem innanríkisráðherra skipaði til að skoða hugmyndir að framtíðarnýtingu hússins.

Meðal niðurstaðna skýrsluhöfunda er að forgangsverkefni sé að gera húsið upp þar sem það liggi undir skemmdum. Telur starfshópurinn að þar ætti að vera fjölþætt menningarstarfsemi og þjónusta, svo sem sérhæfð verslunarstarfsemi og veitingarekstur.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum