Hoppa yfir valmynd
20. apríl 2016 Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

Fjórtán sveitarfélög fá 450 milljóna króna styrk til ljósleiðaravæðingar

Fulltrúar sveitarfélaga, fjarskiptasjóðs og innanríkisráðherra skrifuðu undir samning um ljósleiðaraverkefni í dag. - mynd
Fulltrúar fjarskiptasjóðs, nokkrra sveitarfélaga og innanríkisráðherra skrifuðu í dag undir samninga um styrki fjarskiptasjóðs fyrir uppbyggingu ljósleiðara í sveitarfélögunum til að efla fjarskiptasamband í dreifðum byggðum sem markaðurinn sinnir ekki. Alls fá 14 sveitarfélög styrki að þessu sinni til að tengja um 900 staði með ljósleiðara og um 200 staði með ídráttarröri fyrir ljósleiðara. Styrkur ríkisins er alls 450 milljónir króna. Meðal kostnaður ríkisins á hvern stað eru rúmar 400 þúsund krónur.

Fulltrúar fjarskiptasjóðs, nokkrra sveitarfélaga og innanríkisráðherra skrifuðu í dag undir samninga um styrki fjarskiptasjóðs fyrir uppbyggingu ljósleiðara í sveitarfélögunum til að efla fjarskiptasamband í dreifðum byggðum sem markaðurinn sinnir ekki. Alls fá 14 sveitarfélög styrki að þessu sinni til að tengja um 900 staði með ljósleiðara og um 200 staði með ídráttarröri fyrir ljósleiðara. Styrkur ríkisins er alls 450 milljónir króna. Meðal kostnaður ríkisins á hvern stað eru rúmar 400 þúsund krónur.

Auk Ólafar Nordal innanríkisráðherra var Arnbjörg Sveinsdóttir, formaður fjarskiptasjóðs, viðstödd undirritunina ásamt þingmönnunum Haraldi Bendiktssyni og Páli Jóhanni Pálssyni sem sátu í tveimur starfshópum ráðherra um annars vegar valkostagreiningu og hins vegar framkvæmd Íslands ljóstengt sem tekur mið af markmiði ríkisstjórnarinnar og til útbreiðslu háhraða nettenginga en Haraldur var formaður beggja hópa.

Á myndinni að neðan eru frá vinstri Ólöf Nordal, Arnbjörg Sveinsdóttir, Guðný G. Ívarsdsdóttir, Páll Jóhann Pálsson og Haraldur Benediktsson.

Innanríkisráðherra sagði við þetta tækifæri að uppbygging fjarskiptakerfa utan markaðssvæða og þá einkum ljósleiðara í dreifbýli væri eitt af markmiðum stjórnvalda sem fram koma í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar. Undirbúningur þessa verkefnis hefði staðið yfir í nokkur misseri og nú hæfist átakið af krafti. Ljósleiðaravæðing tryggi íbúum í dreifbýli öflugan netaðgang, styrki þróun byggðanna, efli atvinnulíf og geri þau betur í stakk búin til að rækja hlutverk sitt. Ráðherra sagði ljósleiðaratengingu hluta af nútímagæðum og nauðsynlegt að landsmenn geti setið við sama borð í þeim efnum. Með ljósleiðara væri grunnkerfi fjarskipta endurnýjað og þakkaði ráðherra fulltrúum sveitarfélaga fyrir þátt þeirra og áhuga á verkefninu.

Sveitarfélög sem fá styrk eru Borgarbyggð, Húnaþing vestra, Súðavíkurhreppur, Eyja- og Miklaholtshreppur, Sveitarfélagið Skagafjörður, Blönduósbær, Húnavatnshreppur, Norðurþing, Fljótsdalshérað, Svalbarðshreppur, Þingeyjarsveit, Rangárþing eystra, Rangárþing ytra og Kjósarhreppur.

Fulltrúar sveitarfélaga, fjarskiptasjóðs og innanríkisráðherra skrifuðu undir samning um ljósleiðaraverkefni í dag.

Styrkupphæðir til hvers og eins sveitarfélags eru mjög misháar, allt frá rúmum fjórum milljónum króna og upp í yfir 100 milljónir og markast af fjölda staða sem tengja á og umfangi verkefnisins. Gert er ráð fyrir að vinna við tengingarnar fari fljótlega af stað enda hafa sveitarfélögin þegar undirbúið verkið að nokkru leyti.

Fram hefur komið í samskiptum við sveitarstjóra í tengslum við undirbúning verksins að áframhaldandi ljósleiðaravæðing um land allt hefði jákvæð áhrif á byggðaþróun og atvinnulíf, ýtti undir fjölgun starfa og dragi úr fækkun fólks í dreifbýli. Þannig væri unnt að auka fjölbreytni atvinnutækifæra og styrkja sveitarfélög og gera þau betur í stakk búin til að sinna hlutverki sínu. Einnig kæmi æ skýrar í ljós að netsamband væri ráðandi þáttur í vali um búsetu og hefði einnig áhrif á verð eigna í dreifbýli.

Við athöfnina sögðu þeir Haraldur og Páll að þessi aðferð að úthluta fjármagi eftir samkeppni tryggði að hægt væri að ná stórum áföngum og hraða uppbyggingunni og lýstu þeir ánægju með samstarfið við fjarskiptasjóð og innanríkisráðuneytið. Framundan væri að ræða reynsluna af útboðsferlinu, ræða við sveitarfélög og landshlutasamtök og auglýsa næstu áfanga í verkefninu.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum