Hoppa yfir valmynd
12. mars 2016 Dómsmálaráðuneytið

Kjör forseta Íslands fer fram laugardaginn 25. júní

Kjörtímabil forseta Íslands rennur út 31. júlí 2016. Forsætisráðuneytið hefur í samræmi við lög um framboð og kjör forseta Íslands, nr. 36/1945, með síðari breytingum, auglýst að kjör forseta Íslands skuli fara fram laugardaginn 25. júní næstkomandi.

Undirbúningur stjórnvalda að kosningunum hófst með framangreindri auglýsingu forsætisráðherra um kosninguna og er þar tilgreint lágmark og hámark kosningarbærra meðmælenda úr hverjum landsfjórðungi. Fram kemur í auglýsingunni að framboðum til forsetakjörs skuli skila til innanríkisráðuneytisins, ásamt samþykki forsetaefnis, nægilegri tölu meðmælenda og vottorðum yfirkjörstjórna um að þeir séu kosningarbærir, eigi síðar en fimm vikum fyrir kjördag.

Í innanríkisráðuneytinu er hafinn undirbúningur vegna forsetakosninganna og verður uppfærður vefurinn kosning.is opnaður innan skamms þar sem birtast munu fréttir og tilkynningar er varða forsetakosningarnar.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum