Hoppa yfir valmynd
3. september 2015 Dómsmálaráðuneytið

Skrifaði undir samning um árangursstjórnun við Landhelgisgæsluna

Ólöf Nordal innanríkisráðherra og Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, skrifuðu í dag undir árangursstjórnunarsamning ráðuneytisins og LHG þegar ráðherra heimsótti stofnunina. Forstjórinn og nokkrir starfsmenn Landhelgisgæslunnar kynntu helstu þættina í starfseminni fyrir ráðherra og fylgdarliði.

Ólöf Nordal og Georg Kr. Lárusson skrifuðu undir árangursstjórnunarsamning í flugskýli Landhelgisgæslunnar.
Ólöf Nordal og Georg Kr. Lárusson skrifuðu undir árangursstjórnunarsamning í flugskýli Landhelgisgæslunnar.

Í árangursstjórnunarsamningnum er kveðið á um gagnkvæmar skyldur samningsaðila um að lögbundin verkefni stofnunarinnar séu unnin á faglegan og hagkvæman hátt. Einnig skerpir hann á áherslum um stefnumótun, framkvæmd verkefna og áætlunargerð. Er samningnum þannig ætlað að styrkja beitingu árangursstjórnunar sem stýritækis innan Landhelgisgæslunnar. Sett eru fram markmið og áherslur í samningnum um löggæslumál, varnarmál, stjórnsýslu, mannauð, fjármál og fleira. Samningurinn gildir í fimm ár.

Skrifað var undir samninginn að viðstöddum fulltrúum Landhelgisgæslunnar og innanríkisráðuneytisins.

Innanríkisráðherra heimsótti Landhelgisgæsluna í dag og hér er hún í stjórnstöðinni í Skógarhlíð.Innanríkisráðherra kynnti sér einnig starfsemi Landhelgisgæslunnar og leit við í sjómælingadeild og stjórnstöð Gæslunnar auk þess að heimsækja flugrekstrardeildina í flugskýlinu á Reykjavíkurflugvelli.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum