Hoppa yfir valmynd
24. júní 2015 Dómsmálaráðuneytið

Verkefni er varðadómtúlka og skjalaþýðendur flutt til sýslumannsembættis í Vestmannaeyjum

Verkefni sem snúa að löggildingu dómtúlka og skjalaþýðenda verða flutt frá embætti sýslumannsins á Vestfjörðum til embættis sýslumanns í Vestmannaeyjum. Breytingin tekur gildi 1. júlí næstkomandi.

Ólöf Nordal innanríkisráðherra hefur undirritað breytingu á reglugerð nr. 1122/2006 um löggildingu dómtúlka og skjalaþýðenda sem hefur í för með sér að verkefnið verður frá 1. júlí vistað hjá embætti sýslumannsins í Vestmannaeyjum. Hefur reglugerðarbreytingin verið birt í Stjórnartíðindum.

Sjá má reglugerðina á vef Stjórnartíðinda

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum