Hoppa yfir valmynd
3. mars 2015 Dómsmálaráðuneytið

Drög að breytingum á lögræðislögum til umsagnar

Drög að frumvarpi til breytinga á lögræðislögum, nr. 71/1997 með síðari breytingum, eru nú til kynningar hjá innanríkisráðuneytinu. Unnt er að senda umsagnir á netfangið [email protected] til og með 10. mars næstkomandi.

Forsaga frumvarpsdraganna er margþætt. Megin tilgangur frumvarpsins eru úrbætur á lögræðislögum með hliðsjón af mannréttindaskuldbindingum íslenskra stjórnvalda. Framlagning frumvarpsins er liður í undirbúningi fullgildingar samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og felur í sér breytingar vegna 12. gr. samningsins. Þá er í frumvarpinu brugðist við ábendingum og tillögum nefndar Evrópuráðsins gegn pyndingum vegna heimsóknar hennar til Íslands árið 2012.

Enn fremur byggist frumvarpið á hluta þeirra tillagna sem komu fram í umræðuskjali óformlegs samráðshóps á vegum innanríkisráðuneytisins um nauðungarvistanir en samráð hópsins stóð yfir á árunum 2012-2014 í framhaldi af opnum fundi ráðuneytisins um mannréttindi geðsjúkra.

Meginefni frumvarpsins er eftirfarandi:

  1. Breytingar á ákvæðum laganna til undirbúnings fullgildingar samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
  2. Breytingar á ákvæðum laganna vegna ábendinga úr skýrslu CPT nefndarinnar.
  3. Breytingar á ákvæðum laganna um nauðungarvistanir í samræmi við ábendingar óformlegs samráðshóps innanríkisráðuneytisins.
  4. Breytingar á ákvæðum laganna um sviptingu lögræðis, yfirlögráðendur, þ.e. hlutverk þeirra og skyldur, lögráðamenn og aðkomu ráðherra að sviptingu lögræðis.
  5. Yfirfærsla verkefna frá ráðuneytinu til sýslumanns er lýtur að nauðungarvistunum.
  6. Yfirfærsla verkefna frá ráðuneytinu til Þjóðskrár Íslands um skrár á grundvelli laganna.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum