Hoppa yfir valmynd
17. febrúar 2015 Innviðaráðuneytið

Auglýsing um hækkun á gjaldskrá vegna stöðubrotsgjalda

Borgarstjórinn í Reykjavík hefur óskað eftir staðfestingu innanríkisráðherra á hækkun stöðvunarbrota í Reykjavík en samkvæmt umferðarlögum ákveður sveitarstjórn fjárhæðina í gjaldskrá sem ráðherra staðfestir. Á þetta við þegar álagning fer fram á vegum sveitarfélags. Unnt er að senda ráðuneytinu umsagnir um gjaldskrána til og með 4. febrúar næstkomandi á netfangið [email protected].

Á fundi borgarráðs þann 2. október 2014 var tillaga bílastæðanefndar borgarinnar frá 12. september 2014 um hækkun stöðubrotsgjalda samþykkt.

Annars vegar er um að ræða stöðubrotsgjald vegna banns við að leggja ökutækjum nema á sérstaklega merktum stæðum, að eigi megi stöðva eða leggja ökutæki á gangstétt, gangstíg, umferðareyju, á gangbraut, gatnamótum, í merktu stæði fyrir leigubifreiðar eða á biðstöð fyrir hópbifreiðar. Gjald vegna brots gegn ofangreindu mun hækka úr 5.000 kr. í 10.000 kr.

Hins vegar er um að ræða stöðubrotsgjald vegna brots ef ökutæki er lagt í merkt stæði fyrir bifreiðir fatlaðs fólks. Gjald vegna brots gegn ákvæðinu mun hækka úr 10.000 kr í 20.000 kr.

Gjaldskrárbreytingin tekur gildi við birtingu í Stjórnartíðindum.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum