Hoppa yfir valmynd
4. júní 2014 Dómsmálaráðuneytið

Samráð um breytingar á umdæmum embætta sýslumanna og lögreglustjóra

Innanríkisráðuneytið birtir til kynningar og samráðs umræðuskjöl er varða reglugerðir  um umdæmamörk og starfsstöðvar annars vegar lögregluembætta og hins vegar sýslumannsembætta. Þann 22. maí síðastliðin voru birt ný lög nr. 50/2014 um framkvæmdarvald og stjórnsýslu ríkisins í héraði sem og breytingar á  lögreglulögum nr. 90/1996.

Myndræn framsetning umræðuskjala.

Hin nýsettu lög gera ráð fyrir því að settar verði reglugerðir um umdæmamörk og starfsstöðvar hinna nýju embætta að undangengnu samráði. Með birtingu á umræðuskjölunum er verið að hefja það samráðsferli en samkvæmt lögunum skal hafa samráð við Samband íslenskra sveitarfélaga, landshlutasamtök sveitarfélaga, lögreglustjóra og sýslumenn. 

Efni reglugerðanna er tvíþætt:

Annars vegar að ákveða í reglugerð hver umdæmamörk embættanna verða. Sú ákvörðun skal taka mið af skipulagi annarrar opinberrar þjónustu í umdæminu og skal hún tekin að höfðu samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga, landshlutasamtök sveitarfélaga og viðkomandi sýslumenn. Ráðherra ákveður einnig, að höfðu samráði við viðkomandi sýslumann, hvar aðalskrifstofur sýslumanna skulu vera og hvar aðrar sýsluskrifstofur verða starfræktar og hvaða þjónustu þar skuli veita.

Hins vegar að ákveða í reglugerð að höfðu samráði við viðkomandi lögreglustjóra, hvar aðalstöð lögreglustjóra skuli vera og hvar lögreglustöðvar verða starfræktar innan umdæmanna.

Ráðuneytið óskar eftir góðu samráði í aðdraganda breytinganna. Rökstuddar tillögur og/eða athugasemdir óskast sendar á netfangið [email protected] fyrir 1. júlí næstkomandi.

Hér á eftir eru tenglar á umræðuskjöl sem fjalla annars vegar um ný lög um framkvæmdarvald og stjórnsýslu ríkis í héraði og hins vegar um breytingar á lögreglulögum og hvernig unnið verður að ofangreindum breytingum.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum