Hoppa yfir valmynd
5. maí 2014 Dómsmálaráðuneytið

Vegna umfjöllunar um samantekt ráðuneytisins í máli hælisleitanda

Í framhaldi af umfjöllun um úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur og dóms Hæstaréttar sem varða upplýsingagjöf blaðamanna vegna gagna um málefni hælisleitanda í svokölluðu lekamáli vill innanríkisráðuneytið taka eftirfarandi fram:

Rannsókn málsins af hálfu yfirvalda er ekki lokið. Niðurstöður Héraðsdóms Reykjavíkur og síðar Hæstaréttar tengjast einungis þeirri kröfu að blaðamenn upplýsi um heimildarmenn sína. Ráðuneytið ítrekar því að á meðan rannsókn málsins stendur yfir getur hvorki ráðherra né einstaka starfsmenn tjáð sig um það efnislega.

Samantektir ráðuneytisins eins og sú sem fjallað er um í dómi Hæstaréttar eru ekki minnisblöð og hafa ekki slíka stöðu í ráðuneytinu þrátt fyrir að einstaka fjölmiðlar og einstaklingar hafi fjallað um málið með þeim hætti. Slíkar samantekir um feril mála eru alvanalegar í stjórnsýslunni og sú samantekt sem í umræðunni hefur verið er í engu frábrugðin þessari almennu vinnureglu. Fól hún einungis í sér hefðbundna lýsingu á staðreyndum máls, röð afgreiðslna undirstofnana ráðuneytisins og rök lögmanna.

Ráðuneytið ítrekar að engin meiðandi ummæli voru í þeirri samantekt, líkt og einhverjir hafa haldið fram og jafnvel verið dreift af einhverjum sem niðurstöðu ráðuneytisins. Ráðuneytið hefur áður harmað þá umræðu enda hvergi í gögnum ráðuneytisins að finna slíkar staðhæfingar um umræddan hælisleitenda eins og áður hefur verið skýrt tekið fram. Ráðuneytið tekur undir þá gagnrýni að vinnsla og geymsla slíkra gagna eigi ekki að fara fram á opnu drifi tölvukerfis. Þeirri vinnureglu hefur þegar verið breytt til að tryggja aukið öryggi gagna. Um leið skal minnt á að allir starfsmenn ráðuneytisins eru bundnir trúnaði um mál sem til meðferðar eru í ráðuneytinu.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum