Kynnti sér starfsemi Landhelgisgæslunnar
Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra heimsótti í gær Landhelgisgæsluna þar sem forráðamenn hennar kynntu henni hina fjölmörgu þætti starfseminnar. Ráðherra heimsótti aðalstöðvarnar sem eru til húsa við Skógarhlíð, flugdeildina á Reykjavíkurflugvelli og varðskipið Þór sem lá við Miðbakka í Reykjavík.
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, tók á móti ráðherra og fylgdarliði og bauð gesti velkomna. Kynntu forstjórinn og samstarfsmenn hans helstu þættina í starfsemi Landhelgisgsælunnar og ráðherra ræddi við starfsmenn hinna einstöku deilda og sviða.
Auk þess að heimsækja aðalskrifstofu var gengið við á sjómælingasviði og sprengjudeild, flugrekstrar- og flugtæknideildin á Reykjavíkurflugvelli skoðuð svo og flugkostur Landhelgisgæslunnar og endað í varðskipinu Þór þar sem Sigurður Steinar Ketilsson skipherra sýndi ráðherra skipið.
Innanríkisráðherra tjáði forstjóranum og starfsmönnum hans þakkir sínar fyrir móttökurnar og fyrir það hversu mikils trausts Landhelgisgæslan nýtur í þjóðfélaginu. Hún stæði undir því trausti enda væru starfsmenn hennar margreyndir og hæfir sérfræðingar hver á sínu sviði og hefði Landhelgisgæslan margoft sannað getu sínu við leitar- og björgunarstörf.