Hoppa yfir valmynd
11. apríl 2014 Dómsmálaráðuneytið

Ræddi breytingar á umdæmum sýslumanna og lögreglu á fundi hjá SSNV

Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra kynnti fyrirhugaðar breytingar á umdæmum embætta sýslumanna og lögreglustjóra á fundi með fulltrúum embættanna á Blönduósi og  Sauðárkróki ásamt sveitarstjórnarfulltrúum Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra. Alþingi hefur nú til meðferðar lagafrumvörp er fjalla um þessar breytingar og bíða þau nú annarrar umræðu.

Frá fundi innanríkisráðherra með fulltrúum SSNV í Skagafirði í gær.
Frá fundi innanríkisráðherra með fulltrúum SSNV í Skagafirði í gær.

Bjarni Jónsson, formaður SSNV, setti fundinn og bauð ráðherra og fylgdarlið velkomið. Innanríkisráðherra fór síðan yfir helstu þætti lagafrumvarpanna. Þau gera annars vegar ráð fyrir fækkun og stækkun á umdæmum sýslumanna og hins vegar umdæmum lögreglustjóra. Innanríkisráðherra sagði á fundinum að tilgangurinn með stærri rekstrareiningum sýslumannsembætta væri að auka og efla þjónustu ríkisins í héraði og skapa aukin tækifæri til að færa ný verkefni til sýslumanna. Á sama hátt væri tilgangurinn með breytingum á umdæmum lögreglustjóra að auka samhæfingu og samstarf innan lögreglunnar um land allt, standa vörð um grunnþjónustu lögreglunnar, efla stjórnun innan lögreglu og gera lögreglustjórum kleift að sinna alfarið lögreglustjórn. Frumvörpin gera ráð fyrir að breytingarnar taki gildi 1. janúar 2015.

Frá fundi innanríkisráðherra með fulltrúum SSNV í Skagafirði í gær.

Með ráðherra á fundinum voru einnig Halla Bergþóra Björnsdóttir, formaður Lögreglustjórafélagsins, og Þórólfur Halldórsson, formaður Sýslumannafélagsins, og nokkrir  embættismenn ráðuneytisins. Tóku þau einnig til máls á fundinum og töldu fyrirhugaðar breytingar af hinu góða.

Á myndinni eru frá vinstri: Þórólfur Halldórsson, Hanna Birna Kristjánsdóttir, Halla Bergþóra Björnsdóttir og Bjarni G. Stefánsson.

Frá fundi innanríkisráðherra með fulltrúum SSNV í Skagafirði í gær.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum