Hoppa yfir valmynd
19. september 2013 Innviðaráðuneytið

Fræðsluefni um Ellu umferðartröll sýnt yngstu grunnskólanemendunum

Fræðsluefni um Ellu umferðartröll var kynnt í gær í Ráðhúsi Reykjavíkur en það er leikrit ætlað nemendum í fyrsta og öðrum bekk grunnskóla. Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra var viðstödd kynninguna ásamt Jóni Gnarr borgarstjóra og fleiri gestum og fengu þau afhent endurskinsmerki Ellu til að minna á mikilvægi notkunar þeirra.

Leikrit um Ellu umferðartröll var kynnt í gær en það er eins konar umferðarfræðsla fyrir yngstu nemendur grunnskóla.
Leikrit um Ellu umferðartröll var kynnt í gær en það er eins konar umferðarfræðsla fyrir yngstu nemendur grunnskóla.

Markmið verkefnisins er að auka öryggi barna sem eru að fara í fyrsta sinn ein út í umferðina og kynna umferðarreglurnar fyrir þeim á ævintýralegan og fræðandi hátt. Sjóvá og N1 styrktu verkefnið.

Leikritið er eftir Önnu Bergljótu Thorarensen og leikendur eru Andrea Ösp Karlsdóttir, Sigsteinn Sigurbergsson og Stefán Benedikt Vilhelmsson sem eru í leikhópnum Kraðaki. Öll börn sem fá Ellu tröllastelpu í heimsókn fá endurskinsmerki með sér heim ásamt umferðargátlista Ellu umferðartrölls. Listann eiga þau að fylla út með foreldrum og fara yfir umferðarreglurnar. Á vefsíðu verkefnisins er hægt að taka þátt í leik þar sem börn geta nálgast listann, litað myndir af Ellu og félögum og unnið til verðlauna.

Innanríkisráðherra var viðstödd kynningu á leikritinu um Ellu umferðartröll sem sýna á í fyrsta og öðrum bekk grunnskóla landsins.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum