Hoppa yfir valmynd
11. september 2013 Dómsmálaráðuneytið

Próf í íslensku fyrir umsækjendur um íslenskan ríkisborgararétt

Íslenskupróf vegna umsóknar um íslenskan ríkisborgararétt verða næst haldin á vegum Námsmatsstofnunar í desember og er skráning hafin.

Prófin verða haldin á höfuðborgarsvæðinu 9.-13. desember og á eftirtöldum stöðum á landsbyggðinni: Akureyri 2. desember, Egilsstöðum 4. desember og Ísafirði 6. desember.

Skráning í prófin fer fram með rafrænum hætti á vef Námsmatsstofnunar til og með 10. nóvember. Gjald fyrir þátttöku í prófi er 7.000 krónur sem greiða skal í síðasta lagi 10. nóvember inn á reikning Námsmatsstofnunar. Upplýsingar þar að lútandi er að finna á vef stofnunarinnar.

Sjá nánar á vefnum
www.namsmat.is. Einnig eru veittar upplýsingar í síma 550 2400.

Innanríkisráðuneytið
11. september 2013

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum