Hoppa yfir valmynd
10. september 2013 Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

Frímerkja- og póstsögusjóður auglýsir styrki

Frímerkja- og póstsögusjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki til sjóðsins. Umsóknarfrestur er til 30. september næstkomandi. Umsóknum skal fylgja ítarleg greinargerð um í hvaða skyni sótt er um styrk.

Frímerkja- og póstsögusjóður var stofnaður árið 1986 og gilda um hann reglur nr. 453/2001. Tilgangur sjóðsins er að efla og styrkja störf og rannsóknir á sviði frímerkjafræða og póstsögu og hvers konar kynningar- og fræðslustarfsemi til örvunar á frímerkjasöfnun, svo sem með bóka- og blaðaútgáfu. Eins getur sjóðurinn styrkt sýningar og minjasöfn, sem tengjast frímerkjum og póstsögu. Styrki má veita félagasamtökum, einstaklingum og stofnunum.

Í stjórn sjóðsins eiga sæti: Vera Sveinbjörnsdóttir, lögfræðingur, formaður, sem nú er í leyfi og tekur varamaður hennar, Steinunn Valdís Óskarsdóttir, sæti hennar á meðan, Ingimundur Sigurpálsson og Helga Sigríður Böðvarsdóttir, bæði tilnefnd af Íslandspósti, Rúnar Þór Stefánsson og Gunnar Rafn Einarsson, tilnefndir af Landssambandi íslenzkra frímerkjasafnara. Auk Steinunnar eru í varastjórn þeir Vilhjálmur Sigurðsson, tilnefndur af Íslandspósti og Sigfús Gunnarsson, tilnefndur af Landssambandi íslenzkra frímerkjasafnara.

Umsóknir um styrki skal senda til stjórnar sjóðsins og berist þær til Steinunnar Valdísar Óskarsdóttur, innanríkisráðuneytinu, Sölvhólsgötu 7, 150 Reykjavík.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum