Hoppa yfir valmynd
2. september 2013 Dómsmálaráðuneytið

Dómnefnd skilar áliti um umsækjendur um tvö dómaraembætti

Dómnefnd hefur samkvæmt 4. gr. laga um dómstóla nr. 15/1998 skilað umsögn sinni um umsækjendur um embætti tveggja dómara með fast sæti við héraðsdóm Reykjavíkur og eins dómara með fast sæti við héraðsdóm Vestfjarða sem auglýst voru laus til umsóknar þann 6. júní síðastliðinn. Umsækjendur um embættin voru átta en tveir drógu umsóknir sínar til baka, Unnsteinn Örn Elvarsson og Hrannar Már S. Hafberg.

Niðurstaða dómnefndar er að af þeim umsækjendum sem sóttu um embætti dómara við héraðsdóm Reykjavíkur sé Sigríður J. Hjaltested hæfust og að henni frátalinni séu Sigríður Elsa Kjartansdóttir og Þórður Clausen Þórðarson hæfust. Þá telur nefndin að af þeim sem sóttu um embætti dómara við héraðsdóm Vestfjarða, séu Arnaldur Hjartarson og Sigríður Elsa Kjartansdóttir hæfust til að hljóta skipun í það embætti.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum