Hoppa yfir valmynd
23. apríl 2013 Dómsmálaráðuneytið

Lögreglan fær 25 milljóna króna viðbótarframlag til rannsóknar á skipulagðri brotastarfsemi

Ríkisstjórnin ákvað á fundi sínum í morgun að tillögu Ögmundar Jónassonar innanríkisráðherra að veita 25 milljónum króna af ráðstöfunarfé ríkisstjórnarinnar til áframhaldandi vinnu lögreglu í viðureign við skipulagða glæpastarfsemi. Innanríkisráherra segir að þetta framlag þurfi síðan að endurskoða í tengslum við fjáraukalög í haust og fjárlög næsta árs með það fyrir augum að framlög til þessa starfs verði eigi minni en verið hafa. Hann segir jafnframt að rannsóknir lögreglu og aðgerðir hafi skilað miklum árangri.

Ríkisstjórnin hefur undanfarin misseri veitt sérstakt framlag til lögregluembættanna á höfuðborgarsvæðinu og á Suðurnesjum vegna rannsóknarteymis þeirra til að vinna gegn skipulagðri brotastarfsemi á Íslandi. Enn fremur hefur verið starfræktur stýrihópur undir forystu ríkislögreglustjóra en í honum eiga sæti auk fulltrúa ríkislögreglustjóra fulltrúar frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, lögreglunni á Suðurnesjum, lögreglunni í Borgarnesi, lögreglunni á Selfossi og tollstjóra.

Rannsóknarteymi lögreglunnar boðar til fundar með fréttamönnum síðar í dag þar sem greint verður frá árangri af starfinu fram til þessa.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum