Hoppa yfir valmynd
15. mars 2013 Dómsmálaráðuneytið, Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

Fáðu Já! vinnur til verðlauna í Tallinn

Stuttmyndin Fáðu já! – um mörkin milli ofbeldis og kynlífs vann til verðlauna á ráðstefnu þrjátíu Evrópuríkja sem nú stendur yfir í Tallinn. Ráðstefnan er liður í samstarfi um netöryggisáætlun Evrópusambandsins en Ísland er meðal þeirra ríkja sem starfa eftir þeirri áætlun. SAFT heldur utan um það starf fyrir hönd íslenskra stjórnvalda. Fáðu já hlaut fyrstu verðlaun í flokknum „myndbönd og fræðslumyndir“ og var gerður góður rómur að myndinni. 

Fulltrúi SAFT, Hrefna Sigurjónsdóttir, framkvæmdastjóri Heimilis og skóla, tók við verðlaununum fyrir Íslands hönd. „Við dreifðum myndinni, Fáðu já til samstarfsfélaga okkar á ráðstefnunni og vakti hún verulega athygli. Nú þegar er mikill áhugi á Norðurlöndunum fyrir að nýta myndina í fræðslu um kynlíf, klám og Internetið og hafa fleiri Evrópuþjóðir einnig áhuga,“ segir Hrefna.

Fáðu já er liður í vitundarvakningarátaki stjórnvalda um kynferðisofbeldi gegn börnum sem fram fer í tengslum við samning Evrópuráðsins um varnir gegn kynferðislegri misnotkun og misneytingu á börnum (sjá nánar: http://www.vel.is/vitundarvakning). Myndin hefur verið sýnd í velflestum grunnskólum og framhaldsskólum og er markmiðið að stuðla að umræðu og fræðslu um mörkin milli kynlífs og ofbeldis. Með þeim hætti verða unglingar betur meðvitaðir um hvað kynferðisofbeldi er og um að klámefni endurspeglar ekki raunverulegt kynlíf. Myndin er aðgengileg á vefnum www.faduja.is og þar eru einnig leiðbeiningar sem foreldrar og kennarar geta stuðst við í samtölum við börn og unglinga. Á vefnum er vísað í meiri upplýsingar um kynlíf og kynheilbrigði og hvert hægt er að leita um stuðningsúrræði.

SAFT er, fyrir hönd Íslands, þátttakandi í samstarfi við önnur lönd í Evrópu um netöryggismál og deilir með þeim upplýsingum, aðferðafræði og þekkingu. Markmiðið er að til verði sameiginlegur evrópskur sjóður þekkingar og aðferðafræði á þessu sviði sem styður hið jákvæða og spornar gegn neikvæðum hliðum upplýsingatækninnar. Þannig er stefnt að því að til verði sameiginlegur brunnur fróðleiks og þekkingar um hvernig best er að vinna að öruggri og jákvæðri notkun barna og unglinga á Netinu og þeim miðlum sem því tengjast (sjá nánar: www.saferinternet.org).

„Það er mikill heiður að Fáðu já skuli hafa fengið þessa viðurkenningu á alþjóðavettvangi. Það sýnir að við erum á réttri braut hér á landi í viðleitni okkar til að sporna af öllum mætti gegn kynferðislegu ofbeldi gegn börnum, þar með talið því ofbeldi sem á sér stað unglinga í milli“ segir Halla Gunnarsdóttir, formaður verkefnisstjórnar um vitundarvakninguna.

Hugmyndasmiðir Fáðu já, Brynhildur Björnsdóttir, Páll Óskar og Þórdís Elva eru að vonum ánægðir með viðurkenninguna. „Við vonumst til þess að boðskapur Fáðu já breiðist út um veröldina og að önnur lönd sjái hag sinn í því að endurgera myndina, svo hún geti talað beint til fólks á hverjum stað. Það er aldrei of seint að breyta heiminum,“ segja þau.

 

 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum