Hoppa yfir valmynd
30. október 2012 Dómsmálaráðuneytið

Drög að lagafrumvarpi um almenningssamgöngur á landi til umsagnar

Til umsagnar eru nú hjá innanríkisráðuneytinu drög að frumvarpi til laga um almenningssamgöngur á landi. Unnt er að senda athugasemdir til ráðuneytisins til og með 15. nóvember á netfangið [email protected].

Frumvarpsdrögin hafa verið unnin á vegum vinnuhóps í innanríkisráðuneytinu, með aðkomu Vegagerðarinnar, Umferðarstofu, fulltrúa allra helstu hagsmunaaðila, Sambands Íslenskra sveitarfélaga, ásamt Alþýðusambandi Íslands og Öryrkjabandalagi Íslands. Eyvindur G. Gunnarsson, dósent við lagadeild Háskóla Íslands, og Oddur Þórir Þórarinsson laganemi unnu með vinnuhópnum og stilltu upp drögum að lagafrumvarpi. Leitað hefur verið eftir sjónarmiðum þessara aðila og reynt að taka tillit til tillagna og hugmynda sem hafa komið fram.

Við samningu frumvarps þessa hefur verið haft að leiðarljósi að skapa almenna löggjöf sem í senn tryggir festu og sveigjanleika á þessu sviði þannig að ólíkir hagsmunahópar og rekstaraðilar geti þrifist.

Löggjöf um samgöngur á landi í atvinnuskyni hefur ekki tekið breytingum í samræmi við þá þróun sem orðið hefur í farþegaflutningum undanfarin ár. Þá taka þau ekki mið af alþjóðlegri þróun sem hefur orðið á þessu sviði. Þörf á heildarendurskoðun þessa lagaumhverfis var því orðin brýn og að stilla upp heildstæðri löggjöf um samgöngur á landi í atvinnuskyni, bæði er varðar farþega- og farmflutninga, sem stuðli að hagkvæmum, öruggum og skilvirkum flutningum á farþegum og farmi á landi.

Með frumvarpinu er lagt til að ný lög um almenningssamgöngur taki til almenningssamgangna auk þess að koma í stað laga um fólksflutninga- og farmflutninga á landi nr. 73/2000 og laga um leigubifreiðar nr. 134/2001.

Með því að leitast við að fella þessi mál undir sama lagabálkinn má vænta þess að meira samræmi varðandi flutning farþega náist á milli mismunandi samgöngumáta á landi. Miðað er við að í stað þriggja lagabálka verði tveir, annar um almenningssamgöngur sem hér er til umsagnar og svo annar um farmflutninga sem verður til almennrar umsagnar á netinu innan tíðar.



 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum