Hoppa yfir valmynd
9. október 2012 Dómsmálaráðuneytið

Drög að reglugerð um mælifræðilegt eftirlit með gjaldmælum leigubifreiða til umsagnar

Til umsagnar eru nú hjá innanríkisráðuneytinu drög að reglugerð um mælifræðilegt eftirlit með gjaldmælum leigubifreiða. Unnt er að senda athugasemdir til ráðuneytisins til og með 28. október á netfangið [email protected]

Með lögum nr. 91/2006 um mælingar, mæligrunna og vigtarmenn er stefnt að því að tryggja að hér á landi sé notað mælifræðikerfi sem nýtur trausts jafnt innan lands sem utan. Er því ætlað að stuðla að því að mælingar og mælifræðilegar niðurstöður séu réttar og nákvæmar og tryggi réttmæta og örugga viðskiptahætti, verndi hagsmuni neytenda og líf og heilsu borgaranna og stuðli auk þess að réttarvernd og umhverfisvernd. 

Til að ná þessum markmiðum ber Neytendastofu að hafa eftirlit með því að eingöngu séu markaðssett og seld mælitæki hér á landi sem uppfylla kröfur laga og reglna. Í 2. mgr. 13. gr. laga nr. 91/2006 er að finna upptalningu á eftirlitsskyldum mælitækjum í notkun. Samkvæmt 7. tölulið þessa ákvæðis falla gjaldmælar leigubifreiða undir eftirlitsskyldu laganna. Gjaldmælir leigubifreiðar er búnaður sem vinnur ásamt merkjavaka sem mælitæki. Mælir hann tímalengd og reiknar vegalengd á grundvelli merkis sem kemur frá vegalengdarmerkjavakanum. Að auki reiknar hann og sýnir fargjaldið sem greiða skal fyrir ferð á grundvelli reiknaðrar vegalengdar og/eða mældrar tímalengdar ferðarinnar. Það er því ljóst að mikilvægir hagsmunir eru í húfi fyrir almenning að gjaldmælar leigubifreiða séu í lagi og mæli rétt. Staðfesting um að svo sé skal fengin með löggildingu.

Í 1. mgr. 13. gr. sbr. 1. mgr. 44. gr. laga nr. 91/2006 er að finna heimild fyrir ráðherra til að setja reglugerð um nánari framkvæmd laganna. Það er á grundvelli þessarar heimildar sem drög að reglugerð um mælifræðilegt eftirlit með gjaldmælum leigubifreiða eru lögð fram.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum