Hoppa yfir valmynd
25. maí 2012 Dómsmálaráðuneytið

Dómnefnd hönnunarsamkeppni fangelsis á Hólmsheiði kynnir niðurstöðu 5. júní

Dómnefnd hönnunarsamkeppni fangelsisbyggingar á Hólmsheiði í Reykjavík hefur nú lokið yfirferð sinni á þeim 18 tillögum sem bárust í samkeppnina. Dómnefndin mun kynna verðlaunatillögurnar og aðrar tillögur sem bárust þriðjudaginn 5. júní næstkomandi. Síðar í mánuðinum verða tillögurnar sýndar á Háskólatorgi.

Dómnefndina skipa: Fyrir hönd ráðherra Steinunn Valdís Óskarsdóttir, formaður, Páll E. Winkel fangelsismálastjóri og Pétur Örn Björnsson arkitekt og tilnefnd af Arkitektafélagi Íslands, arkitektarnir Gylfi Guðjónsson og Hildur Gunnarsdóttir.

Frestur til að skila tillögum í hönnun fangelsis á Hólmsheiði rann út 16. apríl og hefur nefndin komið saman á allmörgum fundum til að meta tillögurnar. Dómnefndin hefur ákveðið hvaða tillögur hljóti fyrstu, önnur og þriðju verðlaun og er gert ráð fyrir að eftir að niðurstaðan hefur verið kynnt verði samið við höfund eða höfunda tillögunnar í fyrsta sæti.

Nýja fangelsið á Hólmsheiði er gæsluvarðhalds- og móttökufangelsi með deild fyrir kvenfanga og aðstöðu fyrir afplánun skemmri fangelsisrefsinga og vararefsinga. Gert er ráð fyrir 56 rýmum fyrir fanga og mun byggingin leysa af hólmi Hegningarhúsið í Reykjavík og fangelsið í Kópavogi.

Dómnefndin ásamt trúnaðarmanni kom saman til síðasta fundar síns í gær, frá vinstri: Örn Gunnarsson, trúnaðarmaður dómnefndar, Pétur Örn Björnsson arkitekt, Steinunn Valdís Óskarsdóttir, formaður dómnefndarinnar, Páll Winkel fangelsismálastjóri, Hildur Gunnarsdóttir arkitekt og Gylfi Guðjónsson arkitekt.

Dómnefnd í hönnunarsamkeppni um fangelsi á Hólmsheiði í Reykjavík fundaði í vikunni.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum