Hoppa yfir valmynd
14. mars 2012 Dómsmálaráðuneytið

Próf í íslensku fyrir umsækjendur um íslenskan ríkisborgararétt

Íslenskupróf vegna umsóknar um íslenskan ríkisborgararétt verða næst haldin á vegum Námsmatsstofnunar í maí og júní og er skráning hafin.

Prófin verða haldin á höfuðborgarsvæðinu 6.-8.júní og á eftirtöldum stöðum á landsbyggðinni: Akureyri 30. maí, Ísafirði 31. maí og Egilsstöðum 1. júní.

Skráning í prófin fer fram með rafrænum hætti á vef Námsmatsstofnunar, www.namsmat.is, til og með 10. maí. Gjald fyrir þátttöku í prófi er 7.000 krónur sem greiða skal í síðasta lagi 10. maí inn á reikning Námsmatsstofnunar. Upplýsingar þar að lútandi er að finna á vef stofnunarinnar.

Sjá nánar á vefnum www.namsmat.is. Einnig eru veittar upplýsingar í síma 550 2400.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum