Hoppa yfir valmynd
13. mars 2012 Innviðaráðuneytið

Málþing um samfélagsleg áhrif skipulags samgöngukerfisins

Snúast samgöngur eingöngu um kostnað? er yfirskrift málþings um samfélagsleg áhrif skipulags samgöngukerfisins sem haldið verður í Reykjavík fimmtudaginn 22. mars. Málþingið er haldið að frumkvæði innanríkisráðherra í samstarfi við Vegagerðina og Skipulagsfræðingafélag Íslands sem hefur átt veg og vanda að undirbúningi þess.

Rætt verður um samspil skipulags og samgangna á fundi 22. mars.
Rætt verður um samspil skipulags og samgangna á fundi 22. mars.

Tilgangur málþingsins er að fjalla um samspil skipulags og áhrif þess á samgöngukerfið og raunar allt samfélagið, svo sem byggðaþróun, borgarmynstur, búsetu, umhverfismál og fleira. Sérfræðingar á sviði skipulags, arkitektúrs, fjármála og samgöngumála fjalla um þá ólíku þætti sem liggja til grundvallar þegar skipulag og samgöngur eru annars vegar.

Málþingið hefst klukkan 9 fimmtudaginn 22. mars og fer fram í Rúgbrauðsgerðinni við Borgartún í Reykjavík. Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra setur málþingið og síðan taka við fyrirlestrar til klukkan 11.40. Ráðstefnan endar síðan á samantekt og umræðum.

Meðan á málþinginu stendur sýna nemendur í skipulagstengdu framhaldsnámi ýmis verkefni sín í forsal Rúgbrauðsgerðarinnar. Verkefnin eru unnin við námsbraut í skipulagsfræði við Landbúnaðarháskóla Íslands og námsbraut í umferð og skipulagi við Háskólann í Reykjavík. Aðgangur að málþinginu er ókeypis en þátttakendur eru beðnir að skrá sig með tilkynningu á netfangið: [email protected] eigi síðar en á hádegi miðvikudaginn 21. mars.

Dagskrá málþingsins fimmtudaginn 22. mars:

9:00-9:05 Setning

Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra

9:05-9:20 Inngangur  - Snúast samgöngur aðeins um kostnað?

Dr. Bjarki Jóhannesson, formaður Skipulagsfræðingafélags Íslands

9:20-9:35 Vistvænar samgöngur. Áhrifaþættir í borgarskipulagi

Þorsteinn R. Hermannsson, samgönguverkfræðingur M.Sc., innanríkisráðuneyti & Mannvit

9:40-9:50 2+1 vegir og áhrif þeirra á búsetu og byggðarmynstur

Sverrir Örvar Sverrisson, verkefnastjóri Vegagerðinni

9:50-10:00 Hjáleiðir um þéttbýli

Hrafnhildur Brynjólfsdóttir, Skipulagsfræði og samgöngur M.Sc, Verkís

10:05 – 10:20 Samgöngur og borgarbragur

Páll Gunnlaugsson, arkitekt FAÍ hjá ASK arkitektum

10:25 – 10:40 Upplifun og fagurfræði í samgöngukerfum

Ragnar Frank Kristjánsson, landslagsarkitekt FÍLA og lektor við Landbúnaðarháskóla Íslands

10:45 – 11:00 Kostnaður við samgöngur í þéttbýli

Lúðvík Elíasson, hagfræðingur og kennari við Landbúnaðarháskóla Íslands

11:05 – 11:20 Aðgengi og athafnir sem lykilþættir skipulags byggða og samgangna

Guðmundur Freyr Úlfarsson, Ph.D., prófessor og varadeildarforseti Háskóla Íslands

11:25 – 11:35 Sjálfbærar samgöngur – í bið eða bráð?

Hrafnkell Á. Proppé, skipulagsfræðingur hjá Alta

11:40 – 12:00 Samantekt og umræður

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum