Hoppa yfir valmynd
9. desember 2011 Innviðaráðuneytið

Herjólfur notaður meðan unnið er að framtíðarlausn

Fulltrúar innanríkisráðuneytis, Vestmannaeyjabæjar, Vegagerðarinnar og Siglingastofnunar ræddu áfram í vikunni um ýmsa valkosti bæði til skemmri og lengri tíma varðandi siglingar milli Vestmannaeyja og lands.
Herjólfur prófaður í Landeyjahöfn
Herjólfur prófaður í Landeyjahöfn

Þrátt fyrir fyrir verulega annmarka vegna djúpristu og skipslags núverandi ferju hefur verið ákveðið að á meðan unnið er að framtíðarlausn málsins verði Herjólfur notaður og siglt á Landeyjahöfn þegar hægt er en annars til Þorlákshafnar. Áfram verður reynt eftir föngum að halda nægilegu dýpi fyrir Herjólf í Landeyjahöfn. Ekki verður því að sinni leitað frekar eftir öðru skipi til að leigja til siglinganna á þessum tíma.

Höfuðáhersla verður nú lögð á hönnun og smíði nýrrar ferju auk þess sem allra leiða verður leitað til að tryggja að aðstæður við höfnina verði slíkar að hentugri ferja geti haldið uppi samgöngum þangað allt árið.

Af hálfu Siglingastofnunar er unnið að endurskoðun útreikninga á efnisburði í ljósi breyttra aðstæðna sem einkum má rekja til eldgossins í Eyjafjallajökli. Hér eftir sem hingað til mun stofnunin fá utanaðkomandi sérfræðinga til aðstoðar.  Áfram verður unnið með dönsku straumfræðistöðinni DHI en jafnframt hefur verið ákveðið að leita álita hjá tveimur reyndum aðilum sem ekki komu að hönnun hafnarinnar.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum