Hoppa yfir valmynd
27. október 2011 Dómsmálaráðuneytið

Drög að reglum um styrki til samgönguleiða til umsagnar

Til umsagnar eru nú hjá innanríkisráðuneytinu drög að reglum um styrki til samgönguleiða. Þeir sem óska geta sent umsagnir sínar á netfangið [email protected] fram til 10. nóvember 2011.

Samkvæmt 25. gr. vegalaga nr. 80/2007 er heimilt að ákveða fjárveitingu til að styrkja tilteknar samgönguleiðir sem ekki falla undir skilgreiningar vega samkvæmt lögunum. Heimild svipaðs efnis var að finna í eldri vegalögum en þá var upptalning á þeim samgönguleiðum sem gætu notið styrkja að finna í lögunum.

Samkvæmt núgildandi lögum er kveðið á um að ráðherra setji nánari reglur þar um, sbr. 5. mgr. 25. gr. vegalaga. Nauðsynlegt er að nánari ákvæði séu sett til að skýrt sé hvaða tilvik séu styrkhæf. Í 5. mgr. 25. gr. er einnig kveðið á um að ráðherra setji nánari reglur um framkvæmd styrkveitinga. Eðlilegt er að kveðið sé á um auglýsingar eftir umsóknum um styrki, skilyrði fyrir veitingu styrkja, tíðni úthlutana og aðrar nánari reglur um umsóknir sem ekki er að finna í lögunum en nauðsynlegar eru til að tryggja vandaða afgreiðslu mála.

Loks þykir mikilvægt að kveða á um það skilyrði að samgönguleiðir sem njóta styrkja af almannafé séu til afnota fyrir almenning og að sett séu skilyrði varðandi merkingar en til þess er heimild í  lögum. Af ofangreindum ástæðum eru reglur þessar lagðar til.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum