Hoppa yfir valmynd
22. september 2011 Dómsmálaráðuneytið

Embætti tveggja saksóknara hjá embætti ríkissaksóknara laus til umsóknar

Innanríkisráðuneytið auglýsir embætti tveggja saksóknara hjá embætti ríkissaksóknara laus til umsóknar. Miðað er við að innanríkisráðherra skipi í embættin frá og með 1. nóvember 2011.

Saksóknarar eru ríkissaksóknara til aðstoðar, sbr. 2. mgr. 20. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008, en ríkissaksóknari er æðsti handhafi ákæruvalds. Um verkefni og starfsskyldur ríkissaksóknara má finna upplýsingar í lögum og á heimasíðu embættisins, www.rikissaksoknari.is. Laun eru samkvæmt ákvörðun kjararáðs.

Saksóknari hjá embætti ríkissaksóknara er skipaður til fimm ára og skal fullnægja sömu lagaskilyrðum og héraðsdómari til skipunar í embætti sbr. 2. mgr. 20. gr. laga nr. 88/2008, sbr. 2. mgr. 12. gr. laga nr. 15/1998 um dómstóla.

Í umsókn skulu koma fram upplýsingar um, eftir því sem við á: 1) menntun og hvort umsækjandi hafi í námi sínu sérstaklega lagt sig eftir refsirétti og/eða sakamálaréttarfari, 2) reynslu af sakamálaréttarfari, saksókn mála og/eða annarri meðferð ákæruvalds, 3) reynslu af dómstörfum, 4) reynslu af lögmannsstörfum, 5) reynslu af stjórnsýslustörfum, 6) reynslu af fræðistörfum, 7) reynslu af öðrum aukastörfum sem nýtist í embætti saksóknara, 8) upplýsingar um almenna og sérstaka starfshæfni, 9) upplýsingar sem snúa að andlegu atgervi, áræði, mannlegum samskiptum og sjálfstæði, 10) upplýsingar um þrjá núverandi eða fyrrverandi samstarfsmenn/yfirmenn sem geta veitt upplýsingar um störf, samstarfshæfni og aðra hæfni umsækjanda og 11) aðrar upplýsingar sem varpað geta ljósi á faglega eiginleika og færni umsækjanda sem máli skipta fyrir störf saksóknara.

Umsóknir óskast sendar rafrænt á netfangið [email protected] eða skriflega til innanríkisráðuneytis, Sölvhólsgötu 7, 150 Reykjavík. Með umsókn skal fylgja í tvíriti eftir því sem við á: 1) afrit af prófskírteinum, 2) afrit af ákærum, stefnu og greinargerðum í málum sem umsækjandi hefur samið og flutt munnlega síðustu 12 mánuði, 3) afrit dóma í munnlega fluttum málum sem umsækjandi hefur samið atkvæði í síðustu 12 mánuði, 4) afrit af úrskurðum stjórnvalda og stjórnvaldsákvörðunum sem umsækjandi hefur samið á síðustu 12 mánuðum, 5) útgefin fræðirit og afrit af tímaritsgreinum umsækjanda. Þess er óskað að þær tímaritsgreinar sem hafa verið ritrýndar verði auðkenndar og 6) önnur gögn sem varpa ljósi á faglega færni umsækjanda til starfa sem saksóknari.

Til þess að hraða afgreiðslu umsókna og bréfaskiptum skulu umsækjendur gefa upp tölvupóstfang sem notað verður til að eiga öll samskipti við umsækjendur. Taka skal fram að ráðuneytið kann að óska eftir upplýsingum frá umsækjendum um fjárhag þeirra og hagsmunatengsl sem kunna að hafa áhrif á almennt og sérstakt hæfi saksóknara.

Karlar jafnt sem konur eru hvött til að sækja um, öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipun liggur fyrir. Umsóknir skulu berast innanríkisráðuneytinu eigi síðar en 10. október nk. Nánari upplýsingar um starfið veita Ingilín Kristmannsdóttir, skrifstofustjóri í innanríkisráðuneytinu, í síma 545 9000 og ríkissaksóknari í síma 530 1600.

Innanríkisráðuneytinu,
22. september 2011.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum