Hoppa yfir valmynd
26. ágúst 2011 Dómsmálaráðuneytið

Kynningarfundur vegna löggildingarprófs fyrir dómtúlka og skjalaþýðendur

Löggildingarpróf fyrir dómtúlka og skjalaþýðendur verða haldin í byrjun árs 2012, að undangengnu kynningar- og undirbúningsnámskeiði á vegum Þýðingarseturs Háskóla Íslands. 

Kynningarfundur fyrir þá sem hyggjast þreyta löggildingarpróf verður haldinn föstudaginn 2. september nk. kl. 14:05 að Neshaga 16, stofu 102, 101 Reykjavík.  Allar nánari upplýsingar um undirbúningsnámskeiðið verða veittar á kynningarfundinum.  Próftökum er skylt að sækja undirbúningsnámskeiðið.

Umsóknir á eyðublöðum sem fást hjá sýslumanninum á Hólmavík og hér á vefnum skulu berast sýslumanninum á Hólmavík, Hafnarbraut 25, 510 Hólmavík, í síðasta lagi 30. september nk.  Prófgjald, að fjárhæð kr. 140.000,-, skal greiða inn á reikning sýslumannsins á Hólmavík nr. 0316-26-21, kt. 570269-5189 og skal staðfesting á greiðslu fylgja umsóknum.  Námskeiðsgjald er innifalið í prófgjaldi.

Nánari upplýsingar veitir sýslumaðurinn á Hólmavík í síma 455 3500.


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum