Hoppa yfir valmynd
10. júlí 2011 Innviðaráðuneytið

Efni í bráðabirgðabrú ekið að Múlakvísl á morgun

Vegagerðin hóf í dag viðgerð á veginum vestan við Múlakvísl og smíði bráðabirgðabrúar til að koma á vegasambandi um Hringveginn. Á morgun verður byrjað að aka að efni í brúna. Stefnt er að því að opna leiðina undir lok mánaðarins.

Innanríkisráðherra virðir fyrir sér skemmdirnar á brú og vegi við Múlakvísl.
Innanríkisráðherra virðir fyrir sér skemmdirnar á brú og vegi við Múlakvísl.

Fljótið rann vestur með veginum og skemmdi á stórum kafla.

Hlaup í Múlakvísl sem rennur úr Kötlujökli austast í Mýrdalsjökli tók brúna af í fyrrinótt og er Hringvegurinn lokaður þar til bráðabirgðabrú verður tekin í gagnið. Vegagerðin hóf þegar í gærmorgun hönnun bráðabirgðabrúar sem ráðgert er að verði ofan við brúna sem fór í hlaupinu. Hún verður rúmlega 100 metra löng. Vegagerðin á efni í brúna í birgðastöð sinni á Selfossi en það eru bæði stálbitar og timbur sem geymt hefur verið þegar eldri brýr hafa verið rifnar.

Kallaðir úr fríi

Brúarvinnuflokkar Vegagerðarinnar munu annast verkið en margir starfsmanna hans hófu einmitt sumarfrí um helgina og hafa verið kallaðir til starfa á ný. Í dag hefst lagfæring á veginum vestan Múlakvíslar til að hægt sé að koma að efni. Þá verður einnig hafist handa við að ýta upp vegi við brúarstæðið og huga að því hvernig ánni verður stýrt meðan smíðin fer fram.

Aðeins þrír stöðlar af sex af brúnni yfir Múlakvísl eru eftir.

Í fyrsta áfanga verða reknir niður tréstaurar sem brúin mun hvíla á, síðan smíðaðar timburgrindur ofan á þá þar sem leggjast yfir stálbitar og loks verður brúargólfið lagt úr timbri. Hreinn Haraldsson vegamálastjóri segir að í dag verði staðsetning brúarinnar ákveðin og segir hann bjartsýna spá telja að verkið geti tekið tvær til þrjár vikur.

Ekki fært öllum bílum

Innanríkisráðherra og fjármálaráðherra ræða málin við Múlakvísl.Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra skoðaði verksummerki við Múlakvísl í gær ásamt Steingrími J. Sigfússyni, fjármálaráðherra og starfandi forsætisráðherra, Hreini Haraldssyni vegamálastjóra, Kjartani Þorkelssyni, lögreglustjóra á Hvolsvelli, og fleirum og sagði hann ríkisstjórnina gera allt sem í hennar valdi stæði til að truflun á umferð um Hringveginn vari sem styst. Unnt er að aka Fjallabaksveg nyrðri til að komast um Suðurland en sú leið er ekki fær litlum fólksbílum, stórum rútum eða flutningabílum. Ögmundur segir Vegagerðina hafa brugðist sérlega hratt og vel við og segir hana standa mjög faglega að verki til að bráðabirgðabrúin mætti komast upp sem fyrst.

Hlaupið í Múlakvísl tók brúna á Hringveginum.

Í dag mun Kjartan Þorkelsson funda með almannavarnarnefnd og verður þar meðal annars hugað að því hvernig háttað verður eftirliti og aðstoð við þá sem aka Fjallabaksveg nyrðri. Einnig hugar Vegagerðin að því að lagfæra leiðina milli Landmannalauga og Hringvegarins við Hunkubakka en vegfarendur eru varaðir við því að fara þessa leið nema á góðum bílum.

Fundur með sveitarstjórnarfólki í Vík.Í gærkvöld var síðan fundað í Vík þar sem ráðherrar ræddu við fulltrúa Vegagerðarinnar og sveitarfélagsins og fóru yfir stöðuna. Lögðu sveitarstjórnarmenn áherslu á að vegtengingin kæmist á sem fyrst og hugað verði að því hvort og hvernig mætt yrði auknu álagi og umferð um Fjallabaksleiðina.

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum