Hoppa yfir valmynd
8. júlí 2011 Dómsmálaráðuneytið

Verið að leita eftir þyrlu til leigu

Vegna fréttaflutnings um leigu og skoðanir á þyrlum fyrir Landhelgisgæsluna vill innanríkisráðherra taka eftirfarandi fram:

Landhelgisgæslan hefur um þessar mundir tvær þyrlur í rekstri, TF-LÍF sem er í eigu LHG, og TF-GNÁ sem er leigð. Fyrir liggur að TF-LÍF fer í umfangsmikla skoðun í janúar á næsta ári sem gæti tekið tvo til þrjá mánuði. Sú skoðun hafði verið áformið nú í haust en var frestað þar sem ekki þótti ásættanlegt að aðeins ein þyrla væri til taks í langan tíma.

TF-GNÁ þarf hins vegar að fara í stutta skoðun í ágúst sem tekur fáeinar vikur.

Landhelgisgæslan hefur að undanförnu leitað eftir þyrlu til leigu fyrstu mánuði næsta árs meðan TF-LÍF er í skoðun en með því verður tryggt að tvær þyrlur verði jafnan tiltækar á meðan. Ekki hefur ekki tekist að fá viðunandi lausn á málinu en að því verður unnið áfram þar til lausn fæst.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum