Hoppa yfir valmynd
3. júlí 2011 Dómsmálaráðuneytið, Innviðaráðuneytið

Breskir þingmenn heimsækja innanríkisráðuneytið

Hópur breskra þingmanna hefur verið í heimsókn á Íslandi síðustu daga og gert víðreist. Meðal annars áttu þingmennirnir fund með innanríkisráðherra og ráðuneytisstjóra fyrir helgina í innanríkisráðuneytinu en fundinn sat einnig Benedikt Jónsson, sendiherra Íslands í London.

Auk viðræðna við Ögmund Jónasson átti þingmannahópurinn einnig viðræður við Össur Skarphéðinssson, utanríkisráðherra, Árna Pál Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra, Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur, forseta Alþingis, fulltrúa Seðlabankans og utanríkismálanfnd Alþings. Hluti hópsins, þar á meðal Austin Mitchell, þingmaður fyrir Grimsby og þekktur fyrir vinsemd gagnvart Íslandi, heimsóttu einnig sjávarútvegs- og landbúnaðarráðneytið.

Breskir þingmenn heimsækja innanríkisráðuneytið

Á laugardag brugðu bresku þingmennirnir sér í skoðunarferð um Suðvesturland undir leiðsögn Ögmundar. Ráððherra sagði viðræður hafa verið gagnlegar og fróðlegar ekki síst hve mjög bresku þingmennirnir hefðu tekið undir málstað Íslands í Icesave deilunni: „Eins og fram hefur komið í viðtölum við þingmennina í fjölmiðlum töldu þeir bresk stjórnvöld hafa gengið alltof langt gagnvart Íslendingum í Icesave deilunni. Það er mikilvægt fyrir okkur að heyra þessa tóna sem eru til þess fallnir að efla hin góðu og vinsamlegu samskipti sem Íslendingar og Bretar vilja almennt hafa sín í milli“, sagði Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum