Hoppa yfir valmynd
28. júní 2011 Dómsmálaráðuneytið

Innanríkisráðherra varar við lögbrotum vegna vörslusviptinga

Samtök lánþega sendu innanríkisráðuneytinu fyrir nokkru erindi  vegna framkvæmdar við vörslusviptingar fjármögnunarleigufyrirtækja. Að gefnu tilefni vill innanríkisráðherra upplýsa eftirfarandi vegna málsins:

Samtök lánþega hafa bent stjórnvöldum á að fjármögnunarleigufyrirtæki svipti umráðamenn bifreiða vörslu þeirra og segir fyrirtækin byggja slíka vörslusviptingu á samningum sem dæmdir hafi verið ólögmætir. Um sé að ræða lánasamninga en ekki leigusamninga, fjármögnunarleigufyrirtækin séu þannig ekki eigendur tækjanna og þeim sé því með öllu óheimilt að ganga inn á heimili lánþega og umráðamanna bifreiðanna  og taka þær úr vörslu þeirra síðarnefndu án þess að fyrir því sé skýr aðfararheimild sbr. 78. gr. laga um aðför nr. 90/1989. Nauðsynlegt sé að stjórnvöld grípi þegar inn í og stöðvi vörslusviptingar á eignum fólks sem og starfshætti þá sem þessi fjármögnunarleigufyrirtæki  beita.

Vegna þessa erindis vill innanríkisráðuneytið benda á að telji einhver sig eiga skýlausan rétt á að fá umráð eignar sem er í vörslu annars þarf hinn fyrrnefndi almennt að leita til opinbers aðila til að fá þessa heimild sína staðfesta. Slík er unnt að gera með skjótum hætti á grundvelli 78. gr. laga um aðför. Samkvæmt 78. gr. aðfararlaga er þeim sem telur sér með ólögmætum hætti aftrað að neyta réttinda sem hann telur sig eiga (kallaður gerðarbeiðandi) og getur fært sönnur á rétt sinn með skriflegum sönnunargögnum heimilt að beina til héraðsdómara beiðni um að hlutur sé tekinn úr vörslu þess sem hlutinn hefur (gerðarþola) og afhentur þeim er réttinn á. Dómari tekur afstöðu til þess hvort réttur gerðarbeiðanda sé svo ótvíræður að heimila megi honum umráð hlutarins. Samkvæmt 3. mgr. 83. gr. aðfararlaga skal að jafnaði hafna aðfararbeiðni ef varhugavert verður talið að láta gerðina ná fram að ganga á grundvelli þeirra sönnunargagna sem heimilt er að afla. Það þýðir að leiki vafi á réttmæti kröfu gerðarbeiðanda skal hafna því að aðför fari fram. Sé slíkri aðfararbeiðni hafnað er gerðarbeiðanda óheimilt að taka eign í sína vörslu þar til leyst hefur verið úr ágreiningi aðila.

 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum