Hoppa yfir valmynd
19. maí 2011 Dómsmálaráðuneytið

Fagráð um kynferðisbrot

Innanríkisráðherra hefur sett á stofn þriggja manna fagráð sem fjalla skal um ásakanir vegna ofbeldisbrota og kynferðisbrota einkanlega hjá trúfélögum.

Fagráðið skal vera innanríkisráðherra til ráðgjafar í málum sem þessum og leiðbeina um leiðir til úrbóta. Þá skal það móta reglur fyrir starfsemina sem yrði grundvöllur að tillögum að breytingum á lögum um skráð trúfélög og eftir atvikum stofnanir og félagasamtök sem njóta opinbers stuðnings að einhverju eða öllu leyti og miði að því að koma kærumálum í markvissari farveg.

Fagráðið skal einnig vera innanríkisráðherra til ráðgjafar um framkvæmd laga um skráð trúfélög nr. 108/1999 og þá einkum hvað varðar aðstæður sem greini í 1. málsgrein 6. greinar laganna þar sem fjallað um niðurfellingu skráningar trúfélaga. Þar segir að séu skilyrði til skráningar ekki lengur fyrir hendi eða ef trúfélag vanrækir skyldur sínar samkvæmt lögum skuli ráðuneytið veita trúfélaginu skriflega viðvörun og veita frest til úrbóta. Sé ekki bætt úr getur ráðherra ákveðið að fella skráninguna úr gildi.

Starfshópinn skipa Guðrún Ögmundsdóttir, tengiliður vistheimila sem er formaður, Bragi Guðbrandsson, forstöðumaður Barnaverndarstofu, og Björgvin Björgvinsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu. Með fagráðinu starfar María Rún Bjarnadóttir, sérfræðingur á sviði mannréttindamála í innanríkisráðuneytinu.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum