Hoppa yfir valmynd
21. júní 2021 Matvælaráðuneytið

Ráðstefna 22.júní: Framtíð íslensks sjávarútvegs og fiskeldis: Tækifæri og áskoranir

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, boðar til ráðstefnu þriðjudaginn 22. júní kl. 13 um framtíð íslensks sjávarútvegs og fiskeldis. Ráðstefnan fer fram í Kaldalóni í Hörpu og er öllum opin. Á ráðstefnunni verður gerð grein fyrir nýlegri skýrslu um stöðu og horfur í íslenskum sjávarútvegi og fiskeldi og rætt um þau tækifæri og áskoranir sem blasa við.

Dagskrá:

  • Opnun: Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra
  • Íslenskur sjávarútvegur og fiskeldi 2030
    • Erindi: Sveinn Agnarsson, prófessor við viðskiptafræðideild HÍ
  • Nýsköpun: Forsenda verðmætasköpunar til framtíðar
    • Erindi: Gréta María Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri nýsköpunar, samfélagsábyrgðar og fjárfestatengsla hjá Brim
  • Framtíðin: Tækifæri og áskoranir
    • Erindi: Dr. Gunnar Haraldsson, hagfræðingur og ráðgjafi
  • Pallborðsumræður:
    • Agnes Guðmundsdóttir, markaðs- og sölustjóri Icelandic Asia og formaður félags kvenna í sjávarútvegi
    • Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka
    • Bjarni Ármannsson, forstjóri Iceland Seafood
    • Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Marel á Íslandi
    • Þorsteinn Sigurðsson, forstjóri Hafrannsóknarstofnunar

  

Fundarstjórn:

  • Bergur Ebbi Benediktsson

Fundurinn verður einnig í beinu streymi: 

 

 

Öll velkomin í Hörpu, 22. júní kl. 13:00

Hér má nálgast viðburð á Facebook

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum