Hoppa yfir valmynd
14. febrúar 2020 Matvælaráðuneytið

Staða loðnuleitar rædd í ríkisstjórn

Ekki er rétt að afskrifa mögulegar veiðar meðan leit er enn í gangi. Á myndinni má sjá leiðangra Hafrannsóknarstofnunnar. - myndHafrannsóknarstofnun

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, gerði grein fyrir stöðu loðnuleitar á ríkisstjórnarfundi í dag. Nýafstaðinn könnunarleiðangar á vegum Hafrannsóknarstofnunar sýnir betra ástand stofnsins en fyrri mælingar bentu til, en gefur þó að mati Hafrannsóknastofnunar ekki tilefni til að leggja til útgáfu kvóta.

Á fundinum gerði Kristján Þór grein fyrir því að rannsóknaskipið Árni Friðriksson myndi halda áfram leit út af Austfjörðum og um eða eftir helgi munu fimm skip frá útgerðum uppsjávarskipa einnig koma inn í leitina.  Aldrei áður hafa svo mörg skip tekið þátt í loðnuleit. Fyrirhugað er að mælingin nái yfir allt það svæði sem ætla má að fullorðin loðna geti fundist á á þessum árstíma. Gera má ráð fyrir að sú mæling taki allt að 10 daga.

Ljóst er að ástand loðnustofnsins hefur verið slæmt um nokkurt skeið og útlitið er ekki gott með tilliti til veiða í vetur.  Þó er ekki rétt að afskrifa mögulegar veiðar meðan leit er enn í gangi. Varðandi útlitið á næstu vertíð þá er það mun bjartara.  Í ljósi mælinga á ungloðnu síðastliðið haust hefur Alþjóðahafrannsóknaráðið lagt til veiðar á tæplega 170 þúsund tonnum af loðnu á vertíðinni 2020/2021.  Sú ráðgjöf verður endurskoðuð að loknum mælingum í september 2020.  

 

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

14. Líf í vatni

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum