Hoppa yfir valmynd
12. apríl 2019 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Stóraukin framlög til rannsóknar- og þróunarverkefna á sviði innflytjendamála

 Styrkjunum var úthlutað í Hannesarholti í dag. - mynd

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, veitti í dag styrki til 21 verkefnis úr þróunarsjóði innflytjendamála. Nam heildarfjárhæð styrkja alls 24 milljónum króna. Tilgangur sjóðsins er að efla rannsóknir og þróunarverkefni á sviði innflytjendamála með það að markmiði að auðvelda gagnkvæma aðlögun innflytjenda og íslensks samfélags. Framlög í sjóðinn voru stóraukin í ár en til úthlutunar voru hátt í 25 milljónir króna í stað 10 milljóna eins og verið hefur. Sérstök  áhersla var jafnframt lögð á að styrkir yrðu veittir til verkefna í þágu barna og ungmenna í takt við áherslur ráðherra og einbeittan vilja til að setja málefni þeirra í forgang.

Innflytjendum hefur fjölgað mikið á Íslandi undanfarna tvo áratugi og hlutfall þeirra af heildarmannfjölda svipar nú til hinnar Norðurlandanna. Í lok árs 2018 töldust 9 prósent barna á Íslandi til innflytjenda eða annarrar kynslóðar innflytjenda.  "Lengi býr að fyrstu gerð og er afar mikilvægt er að við hlúum vel að þessum hópi barna bæði námslega og félagslega. Samkvæmt nýrri úttekt Hagstofunnar þá útskrifast mun færri innflytjendur af framhaldsskólastigi sem er áhyggjuefni og mikilvægt að skoðað verði ofan í kjölinn hvað veldur og gerð bragarbót á," sagði Ásmundur Einar við úthlutunina.

Auk áherslu á verkefni í þágu barna og ungmenna var lögð áhersla á rannsóknar- og þróunarverkefni sem tengjast virkri þátttöku innflytjenda og sýnileika þeirra sem og verkefni sem falla vel að þingsályktunartillögu um framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin 2016-2019. Nýmæli í áherslum sjóðsins var á verkefni sem tengjast vinnumarkaðsmálum innflytjenda og skilaði það sér í fjölgun umsókna tengdum þeim.

Alls bárust ráðuneytinu 53 umsóknir og var heildarupphæð styrkumsókna 93 milljónir króna. Sérstök matsnefnd var skipuð af fulltrúum innflytjendaráðs sem í sátu formaður innflytjendaráðs, starfsmaður innflytjendaráðs sem jafnframt er sérfræðingur í félagsmálaráðuneytinu, fulltrúi mennta- og menningarmálaráðuneytisins, fulltrúi dómsmálaráðuneytisins, fulltrúi Sambands íslenskra sveitarfélaga, fulltrúi Reykjavíkurborgar og forstöðumaður Fjölmenningarseturs.

Af þeim styrkjum sem veittir voru laut rúmlega helmingur að málefnum barna og fjölskyldna þeirra. Enn fremur fengu umsóknir sem lutu að  vinnumarkaðsmálum, virkri þátttöku innflytjenda í samfélaginu og menntamálum styrki.

  • Sérstök áhersla var lögð á að styrkir yrðu veittir til verkefna í þágu barna og ungmenna. - mynd
  • Tatjana Latinovic formaður Innflytjendaráðs  - mynd
  • Stóraukin framlög til rannsóknar- og þróunarverkefna á sviði innflytjendamála - mynd úr myndasafni númer 3
  • Stóraukin framlög til rannsóknar- og þróunarverkefna á sviði innflytjendamála - mynd úr myndasafni númer 4
  • Stóraukin framlög til rannsóknar- og þróunarverkefna á sviði innflytjendamála - mynd úr myndasafni númer 5
  • Stóraukin framlög til rannsóknar- og þróunarverkefna á sviði innflytjendamála - mynd úr myndasafni númer 6
  • Stóraukin framlög til rannsóknar- og þróunarverkefna á sviði innflytjendamála - mynd úr myndasafni númer 7
  • Stóraukin framlög til rannsóknar- og þróunarverkefna á sviði innflytjendamála - mynd úr myndasafni númer 8
  • Stóraukin framlög til rannsóknar- og þróunarverkefna á sviði innflytjendamála - mynd úr myndasafni númer 9
  • Stóraukin framlög til rannsóknar- og þróunarverkefna á sviði innflytjendamála - mynd úr myndasafni númer 10
  • Stóraukin framlög til rannsóknar- og þróunarverkefna á sviði innflytjendamála - mynd úr myndasafni númer 11
  • Stóraukin framlög til rannsóknar- og þróunarverkefna á sviði innflytjendamála - mynd úr myndasafni númer 12
  • Stóraukin framlög til rannsóknar- og þróunarverkefna á sviði innflytjendamála - mynd úr myndasafni númer 13
  • Stóraukin framlög til rannsóknar- og þróunarverkefna á sviði innflytjendamála - mynd úr myndasafni númer 14
  • Stóraukin framlög til rannsóknar- og þróunarverkefna á sviði innflytjendamála - mynd úr myndasafni númer 15
  • Stóraukin framlög til rannsóknar- og þróunarverkefna á sviði innflytjendamála - mynd úr myndasafni númer 16
  • Stóraukin framlög til rannsóknar- og þróunarverkefna á sviði innflytjendamála - mynd úr myndasafni númer 17

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum