Hoppa yfir valmynd
17. desember 2010 Dómsmálaráðuneytið

Skipurit innanríkisráðuneytisins kynnt

Skipurit innanríkisráðuneytisins, sem tekur til starfa 1. janúar næstkomandi, var kynnt starfsfólki sem sameinast í hinu nýja ráðuneyti á miðvikudag. Þar gert ráð fyrir sex skrifstofum, þremur fagskrifstofum og þremur stoðskrifstofum.

Heiti skrifstofanna og verkefni eru eftirfarandi:

Skrifstofa stefnumótunar og þróunar

  • Stefnumótun og árangursstjórnun
  • Áætlanagerð og samþætting áætlana
  • Þjónustusamningar
  • Skjala- og gæðamál
  • Almannatengsl
  • Mannauðsmál

Skrifstofa fjármála og rekstrar

  • Fjárlagagerð og rekstraráætlanir
  • Framkvæmd fjárlaga
  • Eftirlit með rekstri stofnana
  • Rekstur ráðuneytisins
  • Húsnæði
  • Innri þjónusta

Skrifstofa réttarfars og stjórnsýslu

  • Stjórnsýsluúrskurðir
  • Gerð lagafrumvarpa og reglugerða, samskipti við Alþingi og umboðsmann Alþingis
  • Dómstólar, réttarfar, greiðsluaðlögun, gjafsókn
  • Birting laga og stjórnvaldserinda
  • Réttindi og leyfisveitingar
  • Samhæfing EES mála

Skrifstofa almannaöryggis

  • Löggæsla
  • Landamæraeftirlit og Schengen
  • Mansal
  • Almannavarnir
  • Björgunarmál
  • Ákæruvald
  • Framsal
  • Fangelsismál og fullnusta dóma
  • Landhelgisgæsla
  • Vöktun, eftirlit og öryggisfjarskipti
  • Flugvernd, siglingavernd og farmvernd
  • Varnarmál

 Skrifstofa mannréttinda og sveitarfélaga

  • Nærþjónusta
  • Sveitarfélög
  • Jöfnunarsjóður
  • Sýslumenn
  • Grunnskrár
  • Þjóðskrá
  • Mannanöfn
  • Vegabréf og skilríki
  • Fasteignaskrá
  • Málefni útlendinga
  • Dvalarleyfi
  • Málefni hælisleitenda
  • Ríkisborgararéttur
  • Kosningar
  • Persónuvernd
  • Trúmál og málefni þjóðkirkjunnar
  • Málefni fjölskyldunnar
  • Barnaréttur
  • Hjúskaparlög
  • Brottnámsmál
  • Erfðamál
  • Ættleiðingar

Skrifstofa innviða

  • Grunnnet og flutningar
  • Samgöngur
  • Samskipti
  • Almenningssamgöngur
  • Öryggi og neytendavernd
  • Samgöngur
  • Samskipti
  • Viðskipti
  • Tækni
  • Samhæfing og þróun tæknilegra innviða stofnana

Skipurit innanríkisráðuneytisins(pdf)

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum